Íshlutfall í maí til ágúst
29. september 2021
Fiskistofa birtir hér niðurstöður eftirlits með endurvigtun m.t.t. íshlutfalls hjá þeim vigtunarleyfishöfum sem sættu eftirliti á tímabilinu 1. maí til 31. ágúst 2021.
Fiskistofa birtir hér niðurstöður eftirlits með endurvigtun m.t.t. íshlutfalls hjá þeim vigtunarleyfishöfum sem sættu eftirliti á tímabilinu 1. maí til 31. ágúst 2021. Séu veruleg frávik á íshlutfalli í afla skips miðað við meðaltalsíshlutfall skipsins í fyrri löndunum er Fiskistofu heimilt að fylgjast með vigtun hlutaðeigandi vigtunarleyfishafa á hans kostnað í allt að sex vikur. Af þeim vigtunarleyfishöfum sem sættu eftirliti á tímabilinu maí til ágúst var einn sem sætti frekara eftirliti.
Taflan sýnir samanburð á vegnu meðalíshlutfalli vigtunarleyfishafa fyrri landana við íshlutfall í afla þegar eftirlitsmaður var á vettvangi.
Nánari upplýsingar um viðmiðunargögn og niðurstöður eftirlitsins má sjá í meðfylgjandi skjali. Rauða súlan auðkennir þær vigtanir þar sem eftirlitsmaður var viðstaddur.