GRÓ Fisheries Training Programme
3. febrúar 2026
Í janúar síðastliðnum tók Fiskistofa þátt í kennslu í tengslum við Fisheries Training Programme (FTP) hjá GRÓ - Þekkingarmiðstöð þróunarsamvinnu á vegum UNESCO.
GRÓ FTP er hluti af alþjóðlegri þróunarsamvinnu Íslands sem hefur það að markmiði að stuðla að sjálfbærum fiskveiðum og bættri auðlindastjórnun. Háskólinn á Akureyri leiðir kennsluna og er náminu ætlað að efla færni og þekkingu fólks frá þróunarlöndum í sjálfbærri nýtingu auðlinda hafs og vatna.
Undanfarin ár hefur Fiskistofa tekið þátt í náminu með kynningu á fiskveiðistjórnunarkerfi Íslands og með því að veita innsýn í framkvæmd og starfsemi Fiskistofu. Með þátttöku okkar í þessu alþjóðlega samstarfi eykur stofnunin tengsl sín við fagfólk um heim allan og leggur sitt af mörkum til að styrkja getu annarra þjóða til sjálfbærrar auðlindastjórnunar
Að þessu sinni komu þátttakendur frá frá Jamaíka, Sankti Vinsent og Grenadínum, Gana, Papúa Nýju-Gíneu, Salómonseyjum, Panama, og Indónesíu.
Á meðfylgjandi mynd má sjá nokkra af þátttakendunum fá smá innsýn í notkun eftirlitsdróna frá tveimur af veiðieftirlitsmönnum Fiskistofu í vetrarveðrinu á Akureyri sem er eflaust ansi ólíkt því veðurfari sem þau þekkja frá sínum heimaslóðum.
