Framkvæmd úthlutunar og millifærsla aflamarks um fiskveiðiáramót
17. ágúst 2023
Nýtt fiskveiðiár hefst þann 1. september og viljum við hvetja aðila til að kynna sér framkvæmd á úthlutun og millifærslum komandi fiskveiðiárs.
![](https://images.ctfassets.net/8k0h54kbe6bj/4Lu9c876hE0Lzq1G1YHJYo/2d3b4d2cd8dc55b4f16afdcbf77f5c5f/fiskistofa_fiskar_i_neti_mynd.jpg?w=50&fm=webp&q=80)
![fiskistofa fiskar i neti mynd](https://images.ctfassets.net/8k0h54kbe6bj/4Lu9c876hE0Lzq1G1YHJYo/2d3b4d2cd8dc55b4f16afdcbf77f5c5f/fiskistofa_fiskar_i_neti_mynd.jpg?w=774&fm=webp&q=80)
Nýtt fiskveiðiár hefst þann 1. september. Reglugerð um veiðar í atvinnuskyni fiskveiðiárið 2023/2024 og almannaksárið 2024 var birt í stjórnartíðindum 14. ágúst 2023.
Úthlutun
Aflamarki verður úthlutað til skipa sem eru með aflahlutdeildir í tegundum sem fylgja fiskveiðiárinu en í deilistofnum um áramót. Tilkynningar um úthlutun aflamarks verða sendar í stafrænt pósthólf útgerða á Ísland.is.
Millifærslur aflamarks
Fiskistofa vekur athygli á því að fyrsta hálfa mánuð nýs fiskveiðiárs verður hægt að færa aflamark milli skipa bæði vegna fiskveiðiársins 2022/2023 og fiskveiðiársins 2023/2024. Millifærslur sem gerðar eru í rafræna millifærslukerfinum fram til 16. september gilda fyrir aflamark sem úthlutað var fyrir fiskveiðiárið 2022/2023.
Athugið
Aflafærslur sem eiga að gilda fyrir nýtt fiskveiðiár þarf að senda á millifaerslur@fiskistofa.is á þar til gerðu eyðublaði eftir því hvort um millifærslu á krókaaflamarki eða aflamarki er að ræða.
Tekið er gjald fyrir aflamarksfærslu í samræmi við gjaldskrá stofnunarinnar.
Frá og með 16. september verður hægt að millifæra aflamark í gegnum rafræna kerfið fyrir fiskveiðiárið 2023/2024.
Taka skal fram á eyðublaði sem sent er til Fiskistofu fyrir hvort aflamarksfærslan eigi að taka gildi á árinu 2022/2023 eða 2023/2024.