Flutningur aflamarks fyrstu tvær vikurnar á nýju fiskveiðiári
26. ágúst 2022
Fiskistofa vekur athygli á að fyrsta hálfa mánuð nýs fiskveiðiárs verður hægt að færa aflamark milli skipa bæði vegna fiskveiðiársins 2021/2022 og 2022/2023.
![](https://images.ctfassets.net/8k0h54kbe6bj/3W68zG8kVqVY7DU1qHxVEA/4d403503b05488cc8385578a92ef399e/fiskist-merki_2x.png?w=50&fm=webp&q=80)
![Fiskistofa logo](https://images.ctfassets.net/8k0h54kbe6bj/3W68zG8kVqVY7DU1qHxVEA/4d403503b05488cc8385578a92ef399e/fiskist-merki_2x.png?w=774&fm=webp&q=80)
Fiskistofa vekur athygli á að fyrsta hálfa mánuð nýs fiskveiðiárs verður hægt að færa aflamark milli skipa bæði vegna fiskveiðiársins 2021/2022 og 2022/2023.
Millifærslur sem gerðar eru í rafræna millifærslukerfinu fram til 16. september munu eingöngu gilda fyrir aflamark sem úthlutað var fiskveiðiárið 2021/2022.
Aðilar sem ætla að færa aflamark innan fiskveiðiársins 2022/2023 skulu senda inn beiðni til Fiskistofu á þar til gerðu eyðublaði. Tekið verður gjald fyrir aflamarksfærslur í samræmi við gjaldskrá stofnunarinnar.
Frá og með 16. september verður hægt að millifæra aflamark í gegnum rafræna kerfið fyrir fiskveiðiárið 2022/2023.