Áætlaðar hlutdeildir í sæbjúgum
15. júlí 2022
Með lögum sem samþykkt voru á Alþingi 15. júní sl. er mælt fyrir um að setja skipum aflahlutdeild í sæbjúgum á skipt niður á veiðisvæði miðað við veiðireynslu á fiskveiðiárunum 2018/2019, 2019/2020 og 2020/2021.
![](https://images.ctfassets.net/8k0h54kbe6bj/3W68zG8kVqVY7DU1qHxVEA/4d403503b05488cc8385578a92ef399e/fiskist-merki_2x.png?w=50&fm=webp&q=80)
![Fiskistofa logo](https://images.ctfassets.net/8k0h54kbe6bj/3W68zG8kVqVY7DU1qHxVEA/4d403503b05488cc8385578a92ef399e/fiskist-merki_2x.png?w=774&fm=webp&q=80)
Með lögum sem samþykkt voru á Alþingi 15. júní sl. er mælt fyrir um að setja skipum aflahlutdeild í sæbjúgum á skipt niður á veiðisvæði miðað við veiðireynslu á fiskveiðiárunum 2018/2019, 2019/2020 og 2020/2021. Í meðfylgjandi skjali eru upplýsingar um landanir og áætlaða hlutdeild útgerða í sæbjúgum.
Fiskistofa beinir því til útgerðaraðila skipa sem eru með veiðireynslu í sæbjúgum á viðmiðunartímabilinu að fara yfir löndunartölur og hlutdeilda útreikningana í meðfylgjandi skjali og senda inn athugasemdir á fiskistofa@fiskistofa.is ef einhverjar eru. Einnig ef útgerðir óska eftir flutningi á veiðireynslu skv. 3. mgr. 9. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða.