Fara beint í efnið
Fiskistofa Forsíða
Fiskistofa Forsíða

Fiskistofa

50 ára starfsafmæli

1. október 2026

Í dag fagnar Guðbjörg E. Ingólfsdóttir starfsmaður Fiskistofu 50 ára starfsafmæli.

Guðbjörg E. Ingólfsdóttir, eða Gugga eins og hún er jafnan kölluð, hefur í dag starfað í 50 ár við stjórnsýslu sjávarútvegs. Hún hóf störf hjá Fiskifélaginu þann 1. október 1976 og hefur því helgað störf sín sjávarútveginum og stjórnsýslu hans hálfa öld.

Mikilvæg þekking og áreiðanleiki

Þegar verkefni Guggu fluttust til Fiskistofu 1. janúar 1999 fylgdi hún með og hefur síðan verið órjúfanlegur hluti af starfsemi stofnunarinnar.

Í gegnum árin hefur Gugga séð til þess að aflaskráning sé rétt og áreiðanleg. Hún er jafnframt þekkt fyrir einstaka þjónustulund, jákvætt viðmót og mikla reynslu sem hefur nýst bæði samstarfsfólki og þjónustuþegum Fiskistofu. Starfsferill hennar endurspeglar mikilvægi þekkingar, fagmennsku og samfellu í opinberri þjónustu.

Starfsgleðin enn til staðar

Þrátt fyrir 50 ára starfsferil segir Gugga enn skemmtilegt að mæta til vinnu og kemur jafnan til starfa með bros á vör. Jákvæðni hennar og vinnugleði hafa einkennt störf hennar í gegnum tíðina og gert hana að mikils metnum samstarfsmanni.

Starfsfólk Fiskistofu óskar Guggu innilega til hamingju með 50 ára starfsafmælið og við óskum henni velfarnaðar og hlökkum til áframhaldandi samstarfs.