Fara beint í efnið
Fiskistofa Forsíða
Fiskistofa Forsíða

Fiskistofa

Ávarp Fiskistofustjóra 2025

Fiskistofa gegnir mikilvægu samfélagslegu hlutverki en stofnuninni er falið að sinna stjórnsýslu og eftirliti með nýtingu sjávarauðlindar Íslendinga. Fiskistofa stuðlar þannig að sjálfbærri nýtingu sjávarauðlindarinnar með vandaðri stjórnsýslu og þjónustu. Verkefnin eru fjölbreytt og síbreytileg sem kallar á fagmennsku, traust og ekki síst stöðuga þróun tæknilausna til að auka skilvirkni, bæta þjónustu og veita betri yfirsýn yfir gögn og upplýsingar.

Árið einkenndist af áframhaldandi þróun starfseminnar og aukinni áherslu á að nýta gögn og tækni til að styrkja alla þætti stofnunarinnar. Sjávarútvegurinn er ein af mikilvægustu atvinnugreinum þjóðarinnar og því skiptir miklu að stjórnsýsla og eftirlit þróist í takt við breytingar í greininni, tækniframfarir og auknar kröfur samfélagsins um gagnsæi og ábyrga nýtingu auðlinda.

Árangur Fiskistofu byggir þó alltaf fyrst og fremst á þekkingu, reynslu og metnaði starfsfólks stofnunarinnar. Verkefnin eru oft flókin og krefjast bæði sérhæfingar og góðs samstarfs, innan stofnunar sem utan. Ég vil því sérstaklega þakka starfsfólki Fiskistofu fyrir fagmennsku, sveigjanleika og elju á árinu.

Þegar horft er yfir árið er margt sem við getum verið stolt af. Nýtt aflaskráningarkerfi leit dagsins ljós, fyrstu hlutar nýs eftirlitskerfis eru komnir í virkni og innleiðing vottorðakerfis til að uppfylla kröfur Evrópusambandsins er á lokametrunum og verður komið í virkni í upphafi næsta árs. Fiskistofa hefur jafnframt unnið ötullega að því að bæta þjónustu með stafrænum lausnum og sjálfvirknivæðingu ásamt því að bæta og auka aðgengi að rauntímaupplýsingum. Aukið sjálfvirkt eftirlit og nýting myndgreiningarlausna ásamt nýtingu gervigreindar við eftirlit er í sífelldri þróun og prófunum í góðri samvinnu við ýmis fyrirtæki í sjávarútvegi. Farið var í sérstakt átak með strandveiðum, einkum varðandi eignarhald og lögskráningu.

Þrátt fyrir öflugt þróunarstarf vitum við að þróun lýkur ekki. Fiskistofa þarf ávallt að huga að áframhaldandi þróun og nýjum verkefnum í takti við tækniframfarir og breytingar í þjóðfélaginu. Traust stjórnsýsla, öflugt eftirlit og góð þjónusta krefjast þess að við séum sífellt tilbúin að læra, þróast og gera betur.

Fram undan eru miklar breytingar í starfsemi og starfsumhverfi Fiskistofu. Slíkar breytingar fela óhjákvæmilega í sér áskoranir og óvissu en skapa um leið tækifæri til að endurskoða verklag, efla samstarf og byggja enn sterkari stjórnsýslu til framtíðar. Mikilvægt er að varðveita þá sérþekkingu og reynslu sem byggst hefur upp hjá Fiskistofu og nýta hana sem grunn að áframhaldandi þróun.

Með þeim hætti leggjum við okkar af mörkum til þess að íslenskar sjávarauðlindir verði áfram nýttar á sjálfbæran og ábyrgan hátt – í þágu samfélagsins alls og komandi kynslóða.

Elín Björg Ragnarsdóttir
Fiskistofustjóri