Gjaldskrá ISAC
Menningar- og viðskiptaráðuneytið gefur út gjaldskrá ISAC sem birt er í Stjórnartíðindum. Núgildandi gjaldskrá er nr. 1201/2024 frá 29. október 2024 og breytast uppæðir í samræmi við breytingar á vísitölu neysluverðs frá útgáfudegi þann 1. janúar ár hvert.
Núgildandi gjaldskrá fyrir þá liði sem varða skoðunarstarfsemi:
Sótt um faggildingu á nýrri skoðunarstofu (nýr lögaðili) fyrir eina skoðunaraðferð að lágmarki.
Ný skoðunarstofa | Upphæð |
|---|---|
Umsóknargjald skoðunarstofu sem stendur undir upplýsingagjöf og leiðbeiningum vegna umsóknar, móttöku, skráningu og yfirferðar umsóknar og fylgiskjala og álitsgerðar um niðurstöður fyrstu yfirferðar. | 420.000 kr. |
Umsóknargjald fyrir hverja skoðunaraðferð sem sótt er um í upphafi og stendur undir móttöku, skráningu og yfirferðar umsóknar og fylgiskjala og álitsgerðar um niðurstöður fyrstu yfirferðar er varðar skoðunaraðferðina. | 168.000 kr. pr. skoðunaraðferð. |
Fyrir ófyrirséða vinnu vegna umsóknar eftir að ISAC hefur sett fram álitsgerð um niðurstöður fyrstu umferðar. Tímagjald sé ekki um annað samið. | Fjöldi unninna vinnustunda á tímagjaldi. |
Faggildingarmat sem fer fram eftir að yfirferð umsóknar er lokið og felst í vali á matsmönnum, gerð verk- og tímaáætlunar, mati á gæðakerfi, skýrslugerð og gerð faggildingarskírteinis. Óska má eftir tilboði í fast gjald fyrir þennan verkþátt frá ISAC. | Fjöldi unninna vinnustunda á tímagjaldi. |
Tæknilegt mat sem er kostnaður vegna sérfræðivinnu, ferða og upphalds í tengslum við úttektir á gæðakerfi, aðstöðu, búnaði og framkvæmd skoðana á starfsstöðvum skoðunarstofunnar og/eða á vettvangi. Ekki er alltaf hægt að gera nákvæma áætlun um hver þessi kostnaður mun að lokum verða. | Samkvæmt framlögðum reikningum eða fjöldi unninna vinnustunda á tímagjaldi sérfræðinga ISAC, eftir atvikum. |
Faggilt skoðunarstofa sækir um að opna nýtt útibú (starfsstöð) þar sem fram fer sams konar starfsemi og í aðalstöðvum sem áður hefur hlotið faggildingu. Útibú í þessum skilningi er ekki starfsaðstaða skoðunarmanns sem framkvæmir allar sínar skoðanir á vettvangi.
Nýtt útibú | Upphæð |
|---|---|
Umsóknargjald fyrir útibú sem stendur undir upplýsingagjöf og leiðbeiningum vegna umsóknar, móttöku, skráningu og yfirferðar umsóknar og fylgiskjala og álitsgerðar um niðurstöður fyrstu yfirferðar. | 315.000 kr. (er 75% af umsóknargjaldi fyrir skoðunarstofu). |
Faggildingarmat sem felst í vali á matsmönnum, gerð verk- og tímaáætlunar, mati á gæðakerfi, skýrslugerð og gerð faggildingarskírteinis vegna nýja útibúsins. | Um 1 klst. á tímagjaldi. |
Tæknilegt mat sem er kostnaður vegna sérfræðivinnu, ferða og upphalds í tengslum við úttektir á gæðakerfi, aðstöðu, búnaði og framkvæmd skoðana á útibúinu. Ekki er alltaf hægt að gera nákvæma áætlun um hver þessi kostnaður mun að lokum verða. | Samkvæmt framlögðum reikningum eða fjöldi unninna vinnustunda á tímagjaldi sérfræðinga ISAC, eftir atvikum. |
Faggilt skoðunarstofa sækir um nýja skoðunaraðferð á tæknisviði sem skoðunarstofan hefur faggildingu á.
Ný skoðunaraðferð | Upphæð |
|---|---|
Umsóknargjald fyrir skoðunaraðferð sem stendur undir móttöku, skráningu og yfirferðar umsóknar og fylgiskjala og álitsgerðar um niðurstöður fyrstu yfirferðar er varðar skoðunaraðferðina. | 168.000 kr. |
Faggildingarmat sem felst í vali á matsmönnum, gerð verk- og tímaáætlunar, mati á gæðakerfi, skýrslugerð og gerð faggildingarskírteinis vegna nýju aðferðarinnar. | Um 8 klst. á tímagjaldi. |
Tæknilegt mat sem er kostnaður vegna sérfræðivinnu, ferða og upphalds í tengslum við úttektir á gæðakerfi, aðstöðu, búnaði og framkvæmd skoðana á útibúinu. Ekki er alltaf hægt að gera nákvæma áætlun um hver þessi kostnaður mun að lokum verða. | Samkvæmt framlögðum reikningum eða fjöldi unninna vinnustunda á tímagjaldi sérfræðinga ISAC, eftir atvikum. |
Faggilt skoðunarstofa sækir um nýja skoðunaraðferð á nýju tæknisviði (skoðunarstofan hefur ekki faggildingu á því tæknisviði).
Ný skoðunaraðferð á nýju tæknisviði | Upphæð |
|---|---|
Umsóknargjald fyrir skoðunaraðferð sem stendur undir móttöku, skráningu og yfirferðar umsóknar og fylgiskjala og álitsgerðar um niðurstöður fyrstu yfirferðar er varðar nýju skoðunaraðferðina og nýja tæknisviðið. | 168.000 kr. |
Faggildingarmat sem felst í vali á matsmönnum, gerð verk- og tímaáætlunar, mati á gæðakerfi, skýrslugerð og gerð faggildingarskírteinis vegna nýju aðferðarinnar. | Um 12 klst. á tímagjaldi. |
Tæknilegt mat sem er kostnaður vegna sérfræðivinnu, ferða og upphalds í tengslum við úttektir á gæðakerfi, aðstöðu, búnaði og framkvæmd skoðana á útibúinu. Ekki er alltaf hægt að gera nákvæma áætlun um hver þessi kostnaður mun að lokum verða. | Samkvæmt framlögðum reikningum eða fjöldi unninna vinnustunda á tímagjaldi sérfræðinga ISAC, eftir atvikum. |
Tímagjald ISAC.
Tímagjald | Upphæð |
|---|---|
Tímagjald þegar vísað er til þess í töflunum. | 21.000 kr./klst. |
Árlega greiðir faggilt skoðunarstofa eftirlitsgjald (grunngjald) vegna faggildingar á þeim tæknisviðum sem hún hefur. Eftirlitsgjaldið stendur undir umsýslu með faggiltum aðila á tæknisviðum hans, gerð verk- og tímaáætlunar og stjórn eftirlitsins.
Árgjald | Upphæð |
|---|---|
Árgjald skoðunarstofu fyrir eitt (eða fyrsta) tæknisvið. | 588.000 kr./ári. |
Árgjald skoðunarstofu fyrir hvert tæknisvið umfram eitt. | 88.000 kr./ári pr. tæknisvið umfram eitt. |
Fyrir hverja eftirlitsúttekt og aukaúttekt er greitt eftirlitsgjald auk kostnaðar vegna tæknilegs mats. Eftirlitsgjaldið stendur undir vali á matsmönnum, úttekt á gæðakerfi, skýrslugerð og álitsgerð um niðurstöður.
Eftirlitsgjöld | Upphæð |
|---|---|
Eftirlitsúttekt á skoðunaraðferð skoðunarstofunnar sem gerð er það árið samkvæmt reglubundinni úttektaráætlun á grundvelli áhættumats. | 168.000 kr. pr. skoðunaraðferð. |
Eftirlitsúttekt á útibúi skoðunarstofu samkvæmt reglubundinni úttektaráætlun á grundvelli áhættumats. | 176.400 kr. (er 30% af árgjaldi). |
Aukaúttekt sem telst nauðsynleg og er utan reglubundinnar úttektaráætlunar, svo sem vegna eftirfylgni með úrvinnslu frávika eða vegna ófyrirsjáanlegra atvika. | Fjöldi unninna vinnustunda á tímagjaldi. |
Tæknilegt mat sem er kostnaður vegna sérfræðivinnu, ferða og upphalds í tengslum við úttektir á gæðakerfi, aðstöðu, búnaði og framkvæmd skoðana á starfsstöðvum skoðunarstofunnar og/eða á vettvangi. Ekki er alltaf hægt að gera nákvæma áætlun um hver þessi kostnaður mun að lokum verða. | Samkvæmt framlögðum reikningum eða fjöldi unninna vinnustunda á tímagjaldi sérfræðinga ISAC, eftir atvikum. |
Tímagjald þegar vísað er til þess í töflunni. | 21.000 kr./klst. |