Fara beint í efnið
Dómstólasýslan Forsíða
Dómstólasýslan Forsíða

Dómstólasýslan

Meðferð persónuupplýsinga

Í starfsemi sinni leggja dómstólar og dómstólasýslan ríka áherslu á að við vinnslu persónuupplýsinga sé gætt að stjórnarskrárvörðum rétti einstaklinga til friðhelgi einkalífs og lagaákvæðum um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga.

Persónuverndarfulltrúi dómstóla starfar hjá dómstólasýslunni og hefur eftirlit með því að farið sé að gildandi lögum og reglum um persónuvernd hjá dómstólum og dómstólasýslunni. Fyrirspurnum, athugasemdum og ábendingum er varða persónuupplýsingar og persónuvernd skal beint til persónuverndarfulltrúa.

Hægt er að hafa samband við persónuverndarfulltrúa dómstólanna og dómstólasýslunnar með því að hringja í síma 432 5010 eða með því að senda tölvupóst á netfangið domstolasyslan@domstolasyslan.is. Einnig er hægt að senda inn erindi til dómstólasýslunnar í gegnum signet transfer og taka fram að erindið skuli berast til persónuverndarfulltrúa. Þá er hægt að bréfpóst til dómstólasýslunnar, Suðurlandsbraut 14, 108 Reykjavík, og þá skal umslagið merkt persónuverndarfulltrúa.

Hér eru veittar upplýsingar um hvernig unnið er með persónuupplýsingar í starfsemi dómstóla og dómstólasýslunnar, í hvaða tilgangi og hvað gert er við upplýsingarnar.

Vinnsla persónuupplýsinga - dómstólar