Dómnefnd um hæfni umsækjenda um embætti dómara
Dómstólasýslan þjónustar dómnefnd um hæfni umsækjenda um embætti dómara samvkæmt sem starfar á grundelli 11. gr. laga um dómstóla nr. 50/2016. Hlutverk dómnefndarinnar er að fjalla um hæfni umsækjenda um embætti hæstaréttardómara, landsréttardómara og héraðsdómara sem og embætti dómenda við Endurupptökudóm.
Dómnefndin lætur ráðherra í té skriflega og rökstudda umsögn um umsækjendur um embætti dómara þar sem tekin skal afstaða til þess hvaða umsækjandi sé hæfastur til að hljóta embættið.
Meira má lesa um dómnefndina á vef stjórnarráðs íslands þar sem umsagnir nefndarinnar eru jafnframt aðgengilegar