Réttlát málsmeðferð
Allir eiga rétt á réttlátri og opinberri málsmeðferð fyrir sjálfstæðum og óvilhöllum dómi. Þessi réttur er meðal annars tryggður í stjórnarskrá Íslands og í Mannréttindasáttmála Evrópu sem Ísland er aðili að.
Dómari má aldrei vera tengdur neinum sem gæti haft áhrif á afstöðu hans í tilteknum málum.
Hver sá sem borinn er sökum um refsiverða háttsemi skal talinn saklaus uns sekt hans er sönnuð að lögum. Þá á sakborningur rétt á því að fá úrlausn um ákæru á hendur sér innan hæfilegs tíma.
Sjá nánar:
70 . gr. Stjórnarskrár lýðveldisins Íslands
6. gr. Mannréttindasáttmála Evrópu