Fara beint í efnið
Dómstólar Forsíða
Dómstólar Forsíða

Dómstólar

Reglur um fasta þingstaði héraðsdómstóla

Reglur dómstólasýslunnar nr. 5/2018

1. gr.

Þingstaðir héraðsdómstóla eru sem hér segir:

  1. Héraðsdómur Reykjavíkur: Aðsetur dómsins í dómhúsinu við Lækjartorg í Reykjavík.

  2. Héraðsdómur Vesturlands: Aðsetur dómsins að Bjarnarbraut 8 í Borgarnesi.

  3. Héraðsdómur Vestufjarða: Aðsetur dómsins að Hafnarstræti 9 á Ísafirði.

  4. Héraðsdómur Norðurlands vestra: Aðsetur dómsins að Skagfirðingabraut 21 á Sauðárkróki.

  5. Héraðsdómur Noðurlands eystra: Aðsetur dómsins að Hafnarstræti 107 á Akureyri.

  6. Héraðsdómur Austurlands: Aðsetur dómsins að Lyngási 15 á Egilsstöðum

  7. Héraðsdómur Suðurlands:
    a. Þinghá sem tekur til sveitarfélaganna: Skaftárhrepps, Mýrdalshrepps, Ásahrepps, Flóahrepps, Bláskógabyggðar, Rangárþings eystra, Rangárþings ytra, Skeiða- og Gnúpverjahrepps, Hrunamannahrepps, Grímsnes- og Grafningshrepps, Hveragerðisbæjar, Sveitarfélagsins Ölfus og Sveitarfélagsins Árborgar: Aðsetur dómsins að Austurvegi 4 á Selfossi.
    b. Þinghá sem tekur til Vestmannaeyjabæjar: Hjá sýslumanninum í Vestmaeyjum að Heiðarvegi 15 í Vestmannaeyjum.

  8. Héraðsdómur Reykjaness: Aðsetur dómsins að Fjarðargötu 9 í Hafnarfirði.

2. gr.

Reglur þessar eru settar samkvæmt heimild í 1. mgr. 36. gr. laga nr. 50/2016 um dómstóla. Þær öðlast gildi 1. janúar 2018.

Þannig samþykkt í stjórn dómstólasýslunnar
11. desember 2017.

Benedikt Bogason
formaður stjórnar dómstólasýslunnar.