Yfirleitt gengur blóðinngjöf áfallalaust fyrir sig. Aukaverkanir við blóðhlutagjafir geta þó komið fyrir og jafnvel verið alvarlegar. Því er mikilvægt að þeir sem gefa blóðhluta sýni varkárni, þekki til helstu aukaverkana og bregðist skjótt við ef líðan sjúklings breytist.
Einkenni
Aukaverkanir geta komið fram á meðan á inngjöf blóðhluta stendur eða nokkrum tímum/dögum síðar. Hugsanleg einkenni eru m.a. hiti, hrollur, andnauð, breytingar á blóðþrýstingi, verkir, útbrot, gula og ógleði/uppköst.
Viðbrögð
Ef grunur leikur á aukaverkun við inngjöf blóðhluta skal:
hætta blóðgjöf strax
halda æðalegg opnum
kalla til lækni sjúklings
meta klínískt ástand sjúklings
staðfesta að sjúklingur hafi fengið réttan blóðhluta
láta starfsmann í Blóðbanka vita; sími 543 5507
draga nýtt 4 ml EDTA blóðsýni úr sjúklingnum og senda til Blóðbankans ásamt beiðni um aukaverkanir og atvik
leiki grunur á gerlamengun í blóðhlutanum skal taka sýni úr sjúklingnum og blóðhlutanum og senda á sýkladeild
skrá inngjöf blóðhluta og upplýsingar um aukaverkun í Interinfo kerfið í Sögu
ekki gefa fleiri blóðhluta nema eftir samráð við Blóðbanka
Þetta er bráð (<24 klst) aukaverkun af ónæmisfræðilegum toga. Yfirleitt eru einkenni væg.
Tímasetning: Kemur oftast fram við lok blóðinngjafar eða fljótlega eftir inngjöf Tíðni: 0,1 - 1,0% af inngjöfum hvítkornasíaðra blóðhluta Orsök: Uppsöfnun á frumuboðum (cytokines) í blóðhluta, HLA- eða hvítkornasértæk mótefni - Hitaaukning ≥ 1°C eða hiti > 38°C, kuldahrollur, vanlíðan Meðferð: Óþægilegt en ekki lífshættulegt, meðhöndlað með hitalækkandi lyfjum
Enska: Acute hemolytic tranfusion reaction
Þetta er bráð (<24 klst) aukaverkun af ónæmisfræðilegum toga. Getur verið lífshættuleg.
Tímasetning: Kemur oftast fram í upphafi inngjafar eða innan fyrstu 15 mínútna Tíðni: 1:76.000 af inngjöfum rauðkorna Orsök: Yfirleitt ABO blóðflokkamisræmi- oft tengt rangri sýnatöku úr sjúklingi eða því að röng eining er gefin Einkenni: Hiti, hrollur, blóðþrýstingsfall, verkur í kvið eða brjósti, ógleði og uppköst, nýrnabilun, dreifð innæðastorknun Meðferð: Gefa vökva og verkjalyf. Viðhalda blóðþrýstingi og þvagútskilnaði.
Enska: Delayed hemolytic transfusion reaction
Þetta er síðbúin aukaverkun af ónæmisfræðilegum toga.
Tímasetning: Kemur fram 5-10 dögum eftir inngjöf Tíðni: 1:2500 - 11.000 Orsök: Saga um mótefni hjá blóðþega gegn mótefnavaka á rauðkornum gjafa. Oftast Rhesus, Kidd, Kell eða Duffy mótefni sem hafa myndast við meðgöngu eða fyrri inngjöf rauðkornaþykknis. Einkenni: Sundrun á inngefnum rauðum blóðkornum, gula, óútskýrt fall á blóðrauða Meðferð: Engin sérstök viðbrögð önnur en að mótefnagreining er nauðsynleg vegna síðari inngripa
Þetta er bráð aukaverkun sem er lífshættuleg.
Tímasetning: Gerist fljótt eftir að blóðhlutainngjöf hefst Líkur: 1:75.000 f. blóðflögugjöf, 1:500.000 f. rauðkornagjöf Orsök: Bakteríumengaðir blóðhlutar. T.d. Pseudomonas, Yersinia, Staphylokokkar. Einkenni: Hiti, hrollur, blóðþrýstingsfall (lost), bráður nýrnaskaði, dreifð innæðastorknun Meðferð: Viðhalda blóðþrýstingi og halda innrennsli í æð opnu, senda sýni úr blóðþega og úr blóðhluta í sýklaræktun, meðferð með breiðvirkum sýklalyfjum
Enska: Urticaria
Þetta er bráð (<24 klst) aukaverkun af ónæmisfræðilegum toga
Tímasetning: Kemur fram skömmu eftir að blóðhlutagjöf hefst Líkur: 1-3% af blóðinngjöfum Orsök: Ofnæmisviðbrögð gegn ofnæmisvökum eða plasmaprótínum í blóðhluta Einkenni: Ofsakláðaútbrot, önghljóð í lungum, hósti Meðferð: Gera hlé á inngjöf blóðs og gefa andhistamínlyf
Ath! Halda má inngjöf blóðs áfram ef eingöngu er um ofsakláðaútbrot að ræða. Gefa andhistamínlyf í fyrirbyggjandi skyni.
Enska: Anaphylaxis
Þetta er bráð aukaverkun sem er lífshættuleg.
Tímasetning: Getur átt sér stað eftir inngjöf aðeins nokkurra millilítra af blóðhluta Líkur: 1:20.000 - 50.000 Orsök: Kemur oftast fram hjá blóðþega með IgA skort sem þegar hefur myndað mótefni gegn IgA við meðgöngu eða blóðhlutagjöf Einkenni: Blóðþrýstingsfall, ofnæmisútbrot, andnauð, ógleði, uppköst, niðurgangur, lost Meðferð: Viðhalda blóðþrýstingi og halda innrennsli í æð opnu, adrenalín, vökvagjöf og barkaþræðing
Ath! Hugsanlegar fyrirbyggjandi aðgerðir eru að gefa þvegin rauðkorn/blóðflögur eða gefa blóðhluta frá IgA-neikvæðum blóðgjöfum sé IgA-skortur fyrir hendi.
Enska: Transfusion-related acute lung injury eða TRALI
Þetta er bráð aukaverkun sem getur verið lífshættuleg
Tímasetning: Kemur fram á meðan á blóðhlutagjöf stendur eða < 6 klst. frá inngjöf blóðhluta Líkur: 1:1.200 til 1:190.000 Orsök: Yfirleitt HLA-mótefni eða HNA-mótefni hjá blóðgjafa gegn sjúklingi, lípíðefni í blóðhluta Einkenni: Skyndileg mæði, öndunarerfiðleikar innan 6 klst. frá gjöf blóðs, súrefnismettun fellur, lungnabjúgur á lungnamynd Meðferð: Stuðningsmeðferð, súrefni, öndunarvél
Ath! Hugsanlegar fyrirbyggjandi aðgerðir eru að vísa blóðgjafa frá ef orsakasamband sannast
Enska: Transfusion-associated circulatory overload eða TACO
Tímasetning: Kemur fram meðan á blóðhlutagjöf stendur eða í kjölfar hennar Líkur: < 1% Orsök: Inngjöf er hraðari/meiri en blóðrásarkerfið getur tekið við, gerist oftast hjá hjartabiluðum, ungabörnum og eldra fólki Einkenni: Öndunarerfiðleikar, hósti, hraður púls, háþrýstingur, lungnabjúgur Meðferð: Súrefni, þvagræsilyf
Ath. Má fyrirbyggja með því að gefa blóðhluta hægt inn
Enska: Transfusion-associated graft versus host disease eða TA-GVHD
Þetta er síðbúin aukaverkun sem er lífshættuleg
Tímasetning: Kemur fram 4-30 dögum eftir inngjöf blóðhluta Líkur: Mjög sjaldgæft Orsök: Eitilfrumur blóðgjafa ráðast gegn frumum (ónæmisbælds) sjúklings Einkenni: Hiti, útbrot, niðurgangur, blóðfrumufæð Meðferð: Stuðningsmeðferð, há dánartíðni
Ath! Má fyrirbyggja með notkun geislaðra blóðhluta
Enska: Post-transfusion purpura eða PTP
Þetta er síðbúin aukaverkun sem getur verið hættuleg
Tímasetning: Kemur fram 5-12 dögum eftir inngjöf blóðhluta Líkur: Mjög sjaldgæft Orsök: Blóðflögueyðing vegna ónæmissvörunar, sjúklingur myndar blóðflögumótefni gegn mótefnavaka sem hann hefur ekki, oft anti-HPA1a Einkenni: Blóðflöguskortur, húðblæðingar, aðrar blæðingar Meðferð: Blóðvökvaskipti eða ónæmisglóbúlín
Ath! Má fyrirbyggja með gjöf HPA-1a neikvæðra blóðhluta