Skurðaðgerð
Áhrif á blóðgjöf
Frestur til að gefa blóð eftir aðgerð er mismunandi og þarf að meta hvert tilvik fyrir sig.
Skurðsvæði skal vera fullgróið, án sauma eða sýkingareinkenna. Ástæða aðgerðar þarf að liggja fyrir.
Minni skurðaðgerðir: Frestur 1 vika - 4 mánuðir eftir að fullum bata er náð.
Stærri skurðaðgerðir: Aðgerðir þar sem fullum bata er ekki náð innan 2 mánaða. Frestur 4 mánuðir eftir að fullum bata er náð.
Athuga lyf, sjá lyfjalista.
Sjá nánar:
Undantekningar og athugasemdir
Sjá nánar:
Blóðgjafi skal vera einkennalaus og við góða líðan eftir aðgerðina.
Skurðsvæði skal vera fullgróið, án sauma eða sýkingareinkenna.
Ástæða aðgerðar þarf að liggja fyrir og blóðtap minniháttar. Ef vefjasýni var tekið, skal bíða þar til niðurstöður hafa borist til blóðgjafa.
Skurðaðgerðir sem hafa farið fram utan Norðurlandanna þurfa sérstakt mat.
Ef blóðgjafi þurfti á blóðinngjöf að halda í tengslum við aðgerð, þarf að fresta blóðgjöf um 4 mánuði. Taka þarf sýni til greiningar á rauðkornamótefnum.
Skurðaðgerð gerð með kviðsjártækni - athuga hvernig speglunarbúnaður var notaður: Ef notað var ósveigjanlegt speglunartæki er frestur 1 mánuður - ef sveigjanlegt speglunartæki er frestur 4 mánuðir.
Viðkomandi telst hafa náð sér að fullu ef:
Líður vel.
Hefur endurheimt hreyfigetu.
Getur sinnt daglegum verkefnum, t.d. unnið, keyrt, sinnt heimilisverkum.
Minni skurðaðgerðir: Frestur 1 vika - 4 mánuðir eftir að fullum bata er náð og án fylgikvilla.
Dæmi um minni aðgerðir og frestur:
Húðbreyting fjarlægð: Má gefa blóð eftir að saumar hafa verið teknir og sárið er gróið og ef húðbreytingarnar voru góðkynja. Svar um vefjasýni þarf að hafa borist til blóðgjafa áður en hann má gefa.
Teknir út naglar, skrúfur eða plötur o.fl.: Má gefa blóð eftir að saumar hafa verið fjarlægðir og sár gróið að fullu.
Botnlangaaðgerð: Má gefa blóð 1 mánuði eftir fullan bata og án fylgikvilla, þ.e. ef aðgerð var gerð með kviðsjártækni og ósveigjanlegum speglunarbúnaði. Ef flókin og /eða opin skurðaðgerð er frestur 4 mánuðir.
Carpal tunnel aðgerð (losun á miðtaug í úlnlið): Má gefa blóð 1 mánuði eftir fullan bata. Ef aðgerð var framkvæmd nýlega, þá er rétt að nota hinn handlegginn við blóðgjöf.
Gall- og nýrnasteinaaðgerð: Má gefa blóð 1 mánuði eftir fullan bata og án fylgikvilla, þ.e. ef aðgerð var gerð með kviðsjártækni og ósveigjanlegum speglunarbúnaði. Ef aðgerð var gerð með sveigjanlegum speglunarbúnaði, flókin og /eða opin skurðaðgerð er frestur 4 mánuðir.
Kvið- /naflaslitsaðgerð: Má gefa blóð 1 mánuði eftir fullan bata og án fylgikvilla. Opin skurðaðgerð frestur 4 mánuðir eftir fullan bata og án fylgikvilla.
Legnám: Legnám með kviðsjártækni (ósveigjanlegum speglunarbúnaði) eða fjarlægt í gegnum leggöng: Má gefa blóð 1 mánuði eftir fullan bata og án fylgikvilla. Opin skurðaðgerð frestur 4 mánuðir eftir fullan bata og án fylgikvilla. Ef legnám vegna illkynja sjúkdóms má ekki gefa blóð.
Liðþófaaðgerð á hné: 1 mánaða frestur fyrir blóðgjöf.
Ófrjósemsisaðgerð kvenna: 1 mánaða frestur fyrir blóðgjöf.
Ófrjósemsisaðgerð karla: 1 vika frestur fyrir blóðgjöf.
Háls- /nefkirtlaaðgerð: Má gefa blóð 1 mánuði eftir fullan bata.
TVT - þvaglekaaðgerð: Má gefa blóð 1 mánuði eftir fullan bata.
Æðahnútaaðgerð á fótlimum: Má gefa blóð 1 viku eftir fullan bata, saumar fjarlægðir og skurðsvæði að fullu gróið. Ef sýking kom upp við / eftir aðgerð, má ekki gefa blóð fyrr en 2 vikum eftir að fullum bata er náð.
Augnaðgerðir: Má gefa blóð ef sár eru gróin, engin bólga eða sýking er í augum og aðgerð var ekki gerð vegna sykursýki eða illkynja sjúkdóms.
Eftir augasteinaskipti: 3 mánaða frestur.
Laseraðgerð vegna nærsýni eða lithimnuloss: 1 mánaða frestur.
Sprautumeðferð við aldursbundinni hrörnun í augnbotnum: 1 viku frestur.
Stærri / meiriháttar aðgerðir: 4 mánaða frestur eftir að fullum bata er náð og án fylgikvilla.
Dæmi um stærri aðgerðir:
Magaband / magaermi / magahjáveita / offituaðgerð: Má gefa blóð 4 mánuðum eftir fullan bata og án fylgikvilla. Járnhagur þarf að vera í lagi.
Brjósklos aðgerð /hryggaðgerðir: Má gefa blóð 4 mánuðum eftir fullan bata og án fylgikvilla.
Brjóstaaðgerð (stækkun, minnkun uppbygging): Má gefa blóð 4 mánuðum eftir fullan bata og án fylgikvilla.
Gerviliðsaðgerð á hné /mjöðm: Má gefa blóð 4 mánuðum eftir fullan bata og án fylgikvilla.
Hjartaaðgerð vegna meðfædds hjartagalla: Má gefa blóð ef hjartagalli var leiðréttur, viðkomandi einkennalaus, ekki var sett ígræði í aðgerð og er eða hefur verið í eftirliti án sérstakra varnaðarorða frá viðkomandi hjartalækni. Aðrar hjartaaðgerðir: má ekki gefa blóð. Sjá: Hjartasjúkdómar
Beinaðgerð: settar skrúfur, naglar, vírar og / eða plötur: Má gefa blóð 4 mánuðum eftir aðgerð og án fylgikvilla, þar sem það getur tekið tíma þar til einkenni sýkingar koma fram. Sjá: Beinbrot
Þarmastífla (ileus): Má gefa blóð 4 mánuðum eftir fullan bata og án fylgikvilla.
Krossbanda aðgerð: Má gefa blóð 4 mánuðum eftir fullan bata og án fylgikvilla.
Miltisnám vegna ákverka / slyss: Má gefa blóð 4 mánuðum eftir fullan bata og án fylgikvilla. Bólusetningarvörnin gæti þurft að endurnýja, sem getur tekið um 12 mánuði. Má ekki samþykkja á bólusetningartímabilinu. Má ekki gefa blóð ef ástæða aðgerðarinnar er illkynja æxli, mergfrumufjölgunarsjúkdómur eða blóðlýsu.
Nýrnanám vegna ákverka / slyss: Má gefa blóð 4 mánuðum eftir fullan bata og án fylgikvilla. Má ekki gefa blóð ef ástæða aðgerðarinnar er illkynja sjúkdómur. Varanleg frávísun.
Nýrnagjafi: Má gefa blóð 4 mánuðum eftir fullan bata og án fylgikvilla.
Aðgerð vegna þrengsla í mænuholi (spinal stenosis): Má gefa blóð 4 mánuðum eftir fullan bata og án fylgikvilla.
Má ekki gefa blóð eftir vissar stærri skurðaðgerðir, varanleg frávísun. Dæmi: Ef fjarlægður hefur verið stór hluti af lunga, maga eða ristli. Ósæðaraðgerð, hjartaaðgerð (ef önnur ástæða en meðfæddur hjartagalli og viðkomandi hefur fengið fullan bata), nýrnaþegi. Aðgerð gerð vegna illkynja sjúkdóms.
Til fróðleiks:
Við skurðaðgerðir getur orðið verulegt blóðtap. Því er mikilvægt að blóðgjafar gefi ekki blóð ef skurðaðgerð er fyrirhuguð. Blóðgjöf stuttu fyrir aðgerð getur seinkað bataferli eftir aðgerð.
Hætta á sýkingu getur fylgt aðgerðum, frá skurðsári eða tækjum sem notuð eru við aðgerðina. Því má ekki gefa blóð nema eftir vissan frest frá aðgerð. Lengd frests fer eftir umfangi aðgerðar.
Brottnám á milta í meðferðarskyni er notuð við ýmsa góðkynja blóðsjúkdóma til þess að minnka eyðingu á blóðfrumum.
Aðgerð á heila getur komið í veg fyrir blóðgjöf. Læknar og hjúkrunarfræðingar Blóðbankans meta hvert tilfelli fyrir sig. Ef pokagúlpur (berry aneurysm) hefur verið meðhöndlaður með geislun eða aðgerð og viðkomandi hefur ekki fengið heilablæðingu má gefa blóð.
Skuggaefni /svæfingalyf: Blóðgjöf er ekki leyfð á meðan rannsókn er í gangi. Má gefa blóð þegar niðurstöður liggja fyrir og ef niðurstöður koma ekki í veg fyrir blóðgjöf. Æskilegt er að bíða með blóðgjöf í 2-3 sólahringa eftir lyfjagjöf í æð.
Lykilorð: Skurðaðgerð, skurðsvæði, minniháttar skurðaðgerðir, stærri skurðaðgerðir, naglar, skrúfur, plötur, botnlangaaðgerð, kviðslitsaðgerð, aðgerð á kvið, aðgerð á nára, ósæðaraðgerð, brottnám á ristli, colectomi, gallsteinaaðgerð, gallblöðruaðgerð, brottnám gallblöðru, brottnám gallsteina, brottnám maga, magabrottnám, gastrectomi, hjáveituaðgerð, magahjáveituaðgerð, gastric band, magaband, gastric sleeve, gastric bypass, magermi,hjartaaðgerð, aðgerð á hjarta, framandi efni í blóðrás, brottnám á legi, legnám, hysterectomy, mjaðmaraðgerð, mjaðmaskipti, carpaltunnel, aðgerð vegna carpal tunnel, hnjáaðgerð, gerviliður, gerviliðsaðgerð, liðskipti speglunaraðgerð, brottnám á milta, brottnám á nýra, nephrectomy, nýragjafi, nýrnasteinar, brottnám nýrnasteina, þrengsli í mænuholi, spinal stenosis, ófrjósemisaðgerð, sterilisering, vasectomy, þarmastífla, ileus, æðahnútaaðgerð á fótleggjum, augnaðgerð, aðgerð á auga, offituaðgerð, svæfingalyf, skuggaefni
Gildir frá: 14. apríl 2026
