Fara beint í efnið
Blóðbankinn Forsíða
Blóðbankinn Forsíða

Blóðbankinn

Hjartasjúkdómar

Áhrif á blóðgjöf

Blóðmissir, til dæmis við blóðgjöf, getur haft talsverða áhættu í för með sér fyrir einstakling með hjarta- eða æðasjúkdóm og aukið líkurnar á hjartaáfalli, slagi eða annars konar alvarlegu atviki.

Meta þarf hvert tilvik fyrir sig, sjá lista yfir hjartasjúkdóma undir "Nánari útskýringar".

Athuga lyf, sjá lyfjalista.

Undantekningar og athugasemdir

Nánari útskýringar:

Má ekki gefa blóð ef er með eða hefur fengið, jafnvel þó einkenni séu ekki til staðar. Varanleg frávísun:

Kransæðasjúkdóm eða hjartaöng- óháð orsök, brjóstverkir vegna þrengsla í kransæðum eða kransæðakrampa (angina pectoris), hjartabilun, hjartalokusjúkdóm, hjartaþelsbólgu, hjartavöðvakvilla, hægra og / eða vinstra greinrof í hjarta, slagæðagúlp, útæðasjúkdóm þ.m.t. heltiköst eða drep, hjartaaðgerð eða aðgerð vegna stíflu eða þrengingar í æð, endurteknar segabláæðabólgur eða segamyndanir, gangráð, greinst með ómeðhöndlaðar hjartsláttartruflanir t.d. gáttatif (Atrial Fibrillation), gáttaflökt (Atrial Flutter), PSVT, sleglahraðtaktur (Ventricular Tachycardia (VT) og AVRNT).

ATHUGIÐ SÉRSTAKLEGA: Ef framandi efni hefur verið ígrætt í blóðrásina má ekki gefa blóð. Varanleg frávísun.

  • Fósturop í hjarta (Foramen ovale, PFO) má gefa blóð ef einkennalaus og engin meðferð áformuð.

  • Hjartaþelsbólga (endocarditis) eða sýking í hjartalokum, má ekki gefa blóð.

  • Saga um aukahljóð við hjartahlustun: Má ekki gefa blóð ef viðkomandi hefur klínísk einkenni.

  • Gollurshúsbólga (pericarditis): Má gefa blóð 12 mánuðum eftir að bata hefur verið náð og ef engar aukaverkanir sjúkdómsins eru til staðar. Ákveðið með öryggi gjafa í huga.

  • Hjartavöðvabólga (myocarditis): Má gefa blóð 12 mánuðum eftir fullan bata og ef engin einkenni sjúkdómsins eru til staðar. Ákveðið með öryggi gjafa í huga.

  • Míturlokubakfall: Má ekki gefa blóð. Varanleg frávísun. Gert til að tryggja öryggi og heilsu blóðgjafans.

  • Aðra sjúkdóma í hjartalokum (t.d. leka í míturloku (Mitral stenosis) getur læknir Blóðbankans samþykkt, ef engin einkenni eru til staðar, viðkomandi er í reglubundnu eftirliti án sérstakra varnaðarorða frá viðkomandi hjartalækni, eða hefur lokið eftirliti.

  • Hjartaaðgerð vegna meðfædds hjartagalla: Má gefa blóð ef hjartagalli var leiðréttur, viðkomandi einkennalaus, ekki var sett ígræði í aðgerð og er eða hefur verið í eftirliti án sérstakra varnaðarorða frá viðkomandi hjartalækni.

  • Leiðslurof, (AV-block) - AV-block I og AV-block II type 1: Má gefa blóð ef þarfnast ekki meðferðar.

  • Leiðslurof, (AV-block) - AV-block II type 2 og AV-block III: Má ekki gefa blóð. Varanleg frávísun. Ákveðið með öryggi gjafa í huga.

  • Greinrof í hjartaleiðni (Bundle branch block): Má ekki gefa blóð. Ákveðið með öryggi gjafa í huga.

  • Lengt QT bil (Long QT syndrome): Má gefa blóð, fyrirbyggjandi meðferð kemur ekki í veg fyrir samþykki. Má ekki gerast gjafi í blóðfrumuskilju (apheresis).

  • Takotsubo hjartabilun (Broken heart syndrome): Má gefa blóð 6 mánuðum eftir að fullum bata er náð.

  • Ígræðsla taktnema undir húð (Implantable loop recorder (ILR): Má gefa blóð 1 mánuði eftir brottnám taktnema.

Til fróðleiks:

Fósturop í hjarta (Patent Foramen Ovale, PFO) er eðlilegur breytileiki sem finnst í um 40% einstaklinga.

Heltiköst (angina, intermittent claudication: Verkir og kraftleysi í fótum (einkum kálfum) og helti sem kemur fram við gang og linast við hvíld. Stafar af vaxandi blóðþurrð í vöðvum vegna blóðrásartruflunar í slagæðum.

Lykilorð: Hjartasjúkdómar, heart diseases, brennsluaðgerð, brennslumeðferð, ablation. sinus rythm, brjóstverkir, kransæðakrampar, angina pectoris, hjartaöng, leiðslurof, AV block, AV block I, AV block II týpa 1, AV block II týpa 2, AV block III, aukahljóð við hjartahlustun, hjartaþelsbólga, endocarditis, sýking í hjartalokum, hjartakvillar, hjartalokukvillar, rafvending, electroconversion, hjartsláttartruflanir, gáttatif, atrial fibrillation, A-fib, gáttaflökt, atrial flutter, PSVT, sleglahraðtaktur, ventricular tachycardia, VT, AVRNT, Endurteknar rafvendingar, hjartaáfall, kransæðastífla, fituskellur, Bradycardia, tachycardia, supraventricular arrythmia, ventricular arrythmia, hjartalokuskemmdir, háþrýstingur, blóðrásarkerfið, Míturlokubakfall, Mitral valve prolapse, Barlows syndrome

Gildir frá: 30. mars 2026