Beinbrot
Áhrif á blóðgjöf
Til þess að mega gefa blóð aftur eftir beinbrot þarf að líða a.m.k. 1 vika og allt uppí 4 mánuðir. Fer eftir alvarleika og hvort aðgerð hafi verið gerð. Sár þurfa að vera gróin, án umbúðar / gifs og engin merki um sýkingar. Viðkomandi þarf að hafa náð sér að fullu.
Viðkomandi telst hafa náð sér að fullu ef:
Líður vel.
Hefur endurheimt hreyfigetu.
Getur sinnt daglegum verkefnum, t.d. unnið, keyrt, sinnt heimilisverkum.
Athuga lyf, sjá lyfjalista.
Sjá nánari útskýringar:
Undantekningar og athugasemdir
Nánari útskýringar:
Minni beinbrot : Dæmi: Tá- eða fingurbrot, einstök rifbrot, lokað úlnliðsbrot / sprunga í beini sem þarfnast ekki aðgerðar: Má gefa blóð eftir 1 viku eftir að bata er náð.
Stærri beinbrot: Dæmi: Lærleggsbrot, mjaðmabrot, ökklabrot, handleggsbrot, viðbeinsbrot, mörg beinbrot með eða án aðgerðar, opið beinbrot: Má gefa blóð 4 mánuðum eftir að brotið átti sér stað eða 4 mánuðum eftir að aðgerð var gerð.
Ef settar eru skrúfur, naglar, vírar og / eða plötur: Má gefa blóð 4 mánuðum eftir aðgerð, þar sem það getur tekið tíma þar til einkenni sýkingar koma fram.
Ef skrúfur, naglar, vírar og / eða plötur eru fjarlægðar: Má gefa blóð eftir að saumar hafa verið teknir, sár hefur gróið og engin einkenni sýkingar til staðar.
Til fróðleiks:
Ógróið sár eykur hættu á að baktería komist inn í blóðrás. Bakteríur í blóðrás geta skapað hættu fyrir blóðþega sem þiggja blóðhluta, þar sem bakterían getur margfaldast í blóðhluta eftir blóðsöfnun.
Sár geta leynst undir gifsi og skapað hættu á að baktería komist inn í blóðrás.
Lykilorð: Beinbrot, brot í beini, fracture, gips, gifs, tábrot, fingurbrot, ökklabrot, rifbrot, kúpubrot, leggbrot, lærleggsbrot, mjaðmabrot, úlnliðsbrot, handleggsbrot, olbogabrot, axlarbrot, hnébrot, mjaðmagrindarbrot, hryggbrot, hryggaðgerð, naglar, skrúfur, plötur, saumar, aðgerð við brot, innsetning skrúfa, innsetning plata, innsetning nagla, fjarlæging skrúfa, fjarlæging nagla, fjarlæging plötu
Gildir frá: 16. apríl 2026
