Skýrsla fæðingaskráar fyrir árið 2019 er nú aðgengileg á vef embættis landlæknis. Í skýrslunni má finna upplýsingar um ýmis atriði er varða meðgöngu, fæðingu og nýburann. Eins má sjá þróun yfir tíma á ákveðnum gæðavísum sem m.a. tengjast inngripum í fæðingu og útkomum fæðinga.