Handbók vegna stöðlunar á stöðu- og framvinduprófum Matsferils
Þjónustuaðili:
Leiðbeiningar vegna stöðlunar á stöðu- og framvinduprófum Matsferils
Hér má nálgast pdf útgáfu af leiðbeiningunum.
Matssvið Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu
17. mars – 11. apríl 2025
Stuðningsúrræði
Sveigjanlegur prófagluggi gerir það að verkum að skólar hafa gott svigrúm til að skipuleggja próffyrirlögnina út frá þörfum nemenda sinna og notkun stuðningsúrræða getur aukið líkur á að nemandi geti sýnt hvað í honum býr. Það er ekki nauðsynlegt að sækja um stuðningsúrræði eða skila inn upplýsingum um nemendur sem njóta þeirra enda eru þau almenn og skólum í sjálfsvald sett hvernig þau eru nýtt.
Mikilvægt er að hafa í huga að notkun stuðningsúrræða má aldrei hafa áhrif á það sem prófum er ætlað að mæla og það er fyrst og fremst í þágu nemenda að niðurstöður prófa endurspegli með sem réttustum hætti frammistöðu þeirra.
Ef próftaka reynir á nemanda getur verið gott fyrir hann að taka sér stutt hlé og halda svo áfram við próftökuna. Athugið þó að hléin þurfa að rúmast innan virks próftíma (80 mínútur) þar sem ekki er hægt að setja prófklukkuna í prófakerfinu á pásu.