Handbók vegna stöðlunar á stöðu- og framvinduprófum Matsferils
Þjónustuaðili:
Leiðbeiningar vegna stöðlunar á stöðu- og framvinduprófum Matsferils
Hér má nálgast pdf útgáfu af leiðbeiningunum.
Matssvið Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu
17. mars – 11. apríl 2025
Stuðningsúrræði
Sveigjanlegur prófagluggi gerir það að verkum að skólar hafa gott svigrúm til að skipuleggja próffyrirlögnina út frá þörfum nemenda sinna og notkun stuðningsúrræða getur aukið líkur á að nemandi geti sýnt hvað í honum býr. Það er ekki nauðsynlegt að sækja um stuðningsúrræði eða skila inn upplýsingum um nemendur sem njóta þeirra enda eru þau almenn og skólum í sjálfsvald sett hvernig þau eru nýtt.
Mikilvægt er að hafa í huga að notkun stuðningsúrræða má aldrei hafa áhrif á það sem prófum er ætlað að mæla og það er fyrst og fremst í þágu nemenda að niðurstöður prófa endurspegli með sem réttustum hætti frammistöðu þeirra.
Ekki þarf að sækja sérstaklega um lengri próftíma þar sem áætlaður próftími er rúmur. Prófakerfið kemur til með að mæla það hversu lengi nemendur dvelja við hvert prófatriði og eins hversu langan tíma það tekur hvern nemanda að leysa prófið. Þessar upplýsingar verða notaðar til að ákvarða lengd próftíma framvegis.