Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Handbók vegna stöðlunar á stöðu- og framvinduprófum Matsferils

Leiðbeiningar vegna stöðlunar á stöðu- og framvinduprófum Matsferils

Hér má nálgast pdf útgáfu af leiðbeiningunum.

Matssvið Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu

17. mars – 11. apríl 2025

    Stuðningsúrræði

    Sveigjanlegur prófagluggi gerir það að verkum að skólar hafa gott svigrúm til að skipuleggja próffyrirlögnina út frá þörfum nemenda sinna og notkun stuðningsúrræða getur aukið líkur á að nemandi geti sýnt hvað í honum býr. Það er ekki nauðsynlegt að sækja um stuðningsúrræði eða skila inn upplýsingum um nemendur sem njóta þeirra enda eru þau almenn og skólum í sjálfsvald sett hvernig þau eru nýtt.

    Mikilvægt er að hafa í huga að notkun stuðningsúrræða má aldrei hafa áhrif á það sem prófum er ætlað að mæla og það er fyrst og fremst í þágu nemenda að niðurstöður prófa endurspegli með sem réttustum hætti frammistöðu þeirra.

    Ef nemandi truflast auðveldlega, eða hætt er við að hann trufli aðra við próftöku, getur verið gott að bjóða upp á próftöku þar sem næði er gott. Eins getur verið gott fyrir nemendur sem þurfa hvatningu og stuðning, annan en þann sem snýr að lausn prófsins, að taka prófið í litlum hópi.