Handbók vegna stöðlunar á stöðu- og framvinduprófum Matsferils
Þjónustuaðili:
Leiðbeiningar vegna stöðlunar á stöðu- og framvinduprófum Matsferils
Hér má nálgast pdf útgáfu af leiðbeiningunum.
Matssvið Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu
17. mars – 11. apríl 2025
Stuðningsúrræði
Sveigjanlegur prófagluggi gerir það að verkum að skólar hafa gott svigrúm til að skipuleggja próffyrirlögnina út frá þörfum nemenda sinna og notkun stuðningsúrræða getur aukið líkur á að nemandi geti sýnt hvað í honum býr. Það er ekki nauðsynlegt að sækja um stuðningsúrræði eða skila inn upplýsingum um nemendur sem njóta þeirra enda eru þau almenn og skólum í sjálfsvald sett hvernig þau eru nýtt.
Mikilvægt er að hafa í huga að notkun stuðningsúrræða má aldrei hafa áhrif á það sem prófum er ætlað að mæla og það er fyrst og fremst í þágu nemenda að niðurstöður prófa endurspegli með sem réttustum hætti frammistöðu þeirra.
Upplestur í prófum: Stærðfræði
Eins og staðan er núna er ekki boðið upp á upplestur í stærðfræðiprófi í gegnum prófakerfið þar sem þessi lausn er enn ekki hluti af kerfinu. Kennari má lesa upp texta á prófi fyrir nemanda en ekki útskýra hugtök eða fyrirbæri sem könnuð eru á prófinu til að hafa ekki áhrif á niðurstöður nemanda.
Upplestur í prófum: Lesskilningur
Með lesskilningsprófi er verið að kanna að hvaða marki nemandi getur nýtt lestrarfærni sína til að afla sér upplýsinga úr texta en það eru einkum nemendur með umskráningarvanda sem þurfa, oftast tímabundið, að reiða sig á upplestur texta. Upplestur reynir á hlustunarskilning og þrátt fyrir að báðar skilningsleiðirnar (lesskilningur og hlustunarskilningur) grundvallist meðal annars á málskilningi nemanda (öll orð sem hann skilur) eru aðrar hugrænar kröfur til staðar sem eru ekki þær sömu. Þar sem verið er að kanna að hvaða marki nemandi getur nýtt lestrarfærni sína til að umskrá og skilja texta er upplestur, hvort heldur sem er á texta eða prófspurningum, ekki leyfður á lesskilningsprófi (sjá einnig umfjöllunina í kaflanum Nemendur með lestrarvanda) í leiðbeiningunum.