Fara beint í efnið

Farsæld og vellíðan barna

Samstarf um þjónustu

Með samþættri þjónustu er skipulega unnið að því að þjónusta barn og foreldra, með hag barnsins að leiðarljósi. Það er gert með því að koma á samstarfi þeirra aðila sem við á. Þessir aðilar eiga að vinna saman og leiðbeina foreldrum barns um þá þjónustu sem er í boði – óháð því hver veitir hana.

Lög um samþættingu þjónustu ná til allra sem þjónusta börn; bæði til opinberra aðila og annarra í skipulögðu starfi fyrir börn.

Aðilar sem þjónusta börn

Í lögum um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna eru aðilar sem þjónusta börn flokkaðir í tvennt:

Annars vegar þjónustuveitendur sem veita þjónustu tengda farsæld barna hjá opinberum aðilum, eða fyrir hönd þeirra.

  • Dæmi um þjónustuveitendur eru leikskólar, grunnskólar, frístundaheimili, félagsmiðstöðvar, framhaldsskólar, heilsugæsla, sérhæfð heilbrigðisþjónusta, lögregla, félagsþjónusta og barnavernd.

Hins vegar annað skipulagt starf sem tengist farsæld barna, kallað almenn þjónusta.

  • Dæmi um veitendur almennrar þjónustu eru sjálfstætt starfandi sérfræðingar, íþrótta-, lista- og æskulýðsstarf og starfsemi frjálsra félaga- og hagsmunasamtaka. 

Á öllum þessum aðilum hvílir sú skylda að fylgjast með velferð og farsæld barns. Ef þeir verða varir við að þörfum barns sé ekki fullnægt eiga þeir að veita barni og foreldrum leiðbeiningar, til dæmis með því að benda þeim á tengilið farsældar í nærumhverfi barnsins.

Til þess að þeir sem veita þjónustu megi deila upplýsingum til tengiliðar barns gætu foreldrar og/eða barn verið beðin um að fylla út eyðublað með beiðni um miðlun upplýsinga.

Tilgangur laganna um samþætta þjónustu er að börn og foreldrar séu ekki send á milli ólíkra þjónustuaðila. Þess í stað aðstoðar tengiliður farsældar þau við að sækja rétta þjónustu án hindrana.

Tengiliður hefur það hlutverk að veita foreldrum og börnum upplýsingar varðandi þjónustu í stað þess að þau þurfi að fara á marga staði til að leita að slíkum upplýsingum. 

Foreldrar og/eða barn þurfa sérstaklega að gefa leyfi áður en tengiliður hefur samband við aðra aðila.

Mismunandi þarfir barna

Börn hafa ólíkar þarfir fyrir stuðning og þjónustu.

Markmiðið er að börn fái rétta þjónustu á réttum tíma, og þannig þurfi færri börn umfangsmeiri þjónustu síðar á lífsleiðinni.

Dæmi um úrræði raðað eftir þjónustuþörf:

  • Grunnþjónusta aðgengileg öllum börnum; til dæmis meðgöngueftirlit, bólusetningar, forvarnir og aðgerðir sem styðja við jákvæðan skólabrag og þjónusta sem kemur efnaminni fjölskyldum til góða.

  • Snemmtækur stuðningur við barn með vægan vanda; til dæmis vegna námsörðugleika, hegðunarvanda eða minniháttar heilsufarsvanda.

  • Sérhæfðari þjónusta og markvissari stuðningur ef fyrri úrræði duga ekki; til dæmis sérdeildir eða starfsbrautir í skóla, einstaklingsbundinn stuðningur, færniþjálfun og fleira.

  • Stuðningur vegna flókins og fjölþætts vanda; til dæmis langvarandi sjúkrahúsdvöl barna og ýmis vistunarúrræði á grundvelli barnaverndarlaga.

Hjá börnum með mikla þjónustuþörf tekur málstjóri við hlutverki tengiliðar. Málstjóri ber meðal annars ábyrgð á gerð stuðningsáætlunar og stýrir stuðningsteymi sem stofnað er fyrir viðkomandi barn.

Stofnanir tengdar samþættri þjónustu

Helstu verkefni stofnana við samþættingu þjónustu samkvæmt lögum um farsæld barna eru þessi:

  • Barna- og fjölskyldustofa sinnir fræðsluhlutverki til þeirra sem veita þjónustu og til notenda þjónustunnar. Hún setur reglur varðandi vinnslu persónuupplýsinga og safnar almennum upplýsingum um málaflokkinn.

  • Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála hefur eftirlit með þeirri þjónustu sem veitt er og vinnur úr kvörtunum notenda. Stofnunin tekur við og vinnur úr kvörtunum notenda og ábendingum um þjónustu við börn.

  • Sveitarfélög tryggja svæðisbundið samráð og tilnefna málstjóra. Félagsþjónusta viðkomandi sveitarfélags getur veitt upplýsingar um réttan tengilið vegna þjónustu við barn.

  • Skólar og heilbrigðisstofnanir tilnefna starfsmenn sem eru tengiliðir vegna samþættrar þjónustu við börn í þeirra umsjá.

Kvartanir og ábendingar vegna þjónustu við börn

Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála hefur eftirlit með gæðum þjónustu við börn og tekur á móti: