Fara beint í efnið

Farsæld og vellíðan barna

  • Hefur þú áhyggjur af barni eða ert þú barn með áhyggjur?

  • Vantar þig einhvern til að tala við varðandi vellíðan og þroska barns?

  • Hefur þú spurningar varðandi þörf barns fyrir þjónustu?

Öll börn hafa svokallaðan tengilið farsældar í sínu nærumhverfi, til dæmis í skóla. Tengiliðurinn er fagaðili sem er til taks varðandi spjall um líðan og þroska barnsins.

Eitt af hlutverkum tengiliðar farsældar er að leiðbeina foreldrum og barni um möguleika varðandi þjónustu ólíkra aðila.

Mikilvægt að vita: Ef þú hefur grun eða vitneskju um að barn verði fyrir vanrækslu eða ofbeldi, eða hefur áhyggjur af áhættuhegðun barns er skylda að tilkynna um það til barnaverndar.

  • Ein leið til þess er Netspjall 112.is, sem getur ráðlagt þér ef þú ert ekki viss hvað er tilkynningaskylt.

Hvað er átt við með farsæld barna?

Öll börn eiga rétt á að fá þá þjónustu sem þau þurfa, þegar á þarf að halda.

Þessi réttur er kallaður samþætting þjónustu í þágu farsældar barna og hefur verið settur í lög. Hugtakið farsæld vísar í aðstæður þar sem barn getur náð fullum þroska og heilsu á eigin forsendum.

Markmiðið er að börn fái rétta þjónustu á réttum tíma – og þannig þurfi færri börn umfangsmeiri þjónustu síðar á lífsleiðinni. 

Lög um farsæld barna ná til allra sem þjónusta börn; bæði til opinberra aðila og annarra í skipulögðu starfi fyrir börn.

Þeir aðilar sem þjónusta barn eiga að vinna saman og leiðbeina foreldrum þess um þá þjónustu sem er í boði – óháð því hver veitir hana.

Tengiliður fyrir hvert barn

Öll börn og foreldrar þeirra hafa aðgang að tengilið farsældar, hjá heilsugæslu, leik-, grunn- og framhaldsskóla eða félagsþjónustu.

Tengiliður barns er fagaðili í nærumhverfi þess sem hefur yfirsýn yfir þá þjónustu sem er í boði og getur svarað spurningum eða bent á leiðir varðandi þjónustu við barnið. Boð um samþættingu þjónustu kemur ekki í veg fyrir að foreldrar sæki sjálfir þjónustu fyrir börn sín.

Tengiliður farsældar greiðir leið fjölskyldunnar í gegnum þau kerfi sem tengjast þjónustu við barnið. Hann veitir foreldrum og börnum upplýsingar varðandi þjónustu í stað þess að þau þurfi að fara á marga staði til að leita að slíkum upplýsingum.Það hvar tengiliður starfar ræðst af aldri barns:

  1. Á meðgöngu og á ungbarnaskeiði: Starfsmaður heilsugæslu – til dæmis ljósmóðir eða hjúkrunar­fræðingur í ung­barna­vernd.

  2. Í leikskóla, grunnskóla eða framhaldsskóla: Starfsmaður skólans – til dæmis deildarstjóri, þroskaþjálfi eða námsráðgjafi.

  3. Fyrir börn og ungmenni sem ekkert af ofantöldu á við: Tengiliður hjá félagsþjónustu síns sveitarfélags.

Nánar um tengiliði og hlutverk þeirra á vefnum Farsæld barna.

Tenglar