Fæðingarorlof
Forsjárlausir foreldrar, réttindi til fæðingarorlofs eða fæðingarstyrks
Skilyrði fyrir umsókn
Það foreldri sem fer með forsjá barns verður að veita samþykki fyrir því að forsjárlausa foreldrið hafi umgengni við barnið þann tíma sem það hyggst vera í fæðingarorlofi. Liggi samþykki fyrir, getur forsjárlausa foreldrið átt rétt á fæðingarorlofi eða fæðingarstyrk eftir því sem við á.
Forsjárforeldrið getur veitt samþykki sitt:
á eyðublaðinu Umsókn um fæðingarstyrk / Umsókn um greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði
á eyðublaðinu Umgengnisréttur forsjárlauss foreldris í fæðingarorlofi
Umsókn og fylgigögn
Auk samþykkisins verður faðernisviðurkenning að fara fram og fæðingarvottorð barns að fylgja umsókninni.
Fæðingarvottorð eru gefin út af Þjóðskrá, en faðernisviðurkenning getur farið fram:
hjá sýslumanni
fyrir dómara í dómsmáli til feðrunar barns
með skriflegri yfirlýsingu og skal undirritun hennar staðfest af lögmanni eða tveimur vitundarvottum. Þar skal koma fram að útgefandi yfirlýsingarinnar hafi skrifað undir hana í viðurvist vottanna og þarf kennitala þeirra að fylgja með.
Þjónustuaðili
Vinnumálastofnun