Fæðingarorlof
Fósturlát og andvana fæðing, réttindi til fæðingarorlofs eða fæðingarstyrks
Foreldrar eiga rétt á fæðingarorlofi eða fæðingarstyrk við fósturlát eftir 18 vikna meðgöngu og vegna andvanafæðingar eftir 22 vikna meðgöngu.
Fósturlát
Við fósturlát eftir 18 vikna meðgöngu eiga foreldrar sameiginlegan rétt á fæðingarorlofi eða fæðingarstyrk í allt að 2 mánuði frá þeim degi sem fósturlátið átti sér stað.
Andvanafæðing
Við andvanafæðingu barns eftir 22 vikna meðgöngu eiga foreldrarnir sameiginlegan rétt á fæðingarorlofi eða fæðingarstyrk í allt að 3 mánuði frá þeim degi sem fæðingin átti sér stað.
Umsókn og fylgigögn
Vegna fæðingarorlofs (fyrir foreldra á innlendum vinnumarkaði):
Tveir síðustu launaseðlar
Læknisvottorð eða yfirlýsing frá sjúkrahúsi þar sem tímalengd meðgöngu kemur fram ásamt móðerni og faðerni barns.
Vegna fæðingarstyrks (fyrir foreldra í námi, án atvinnu eða í undir 25% starfi):
Læknisvottorð eða yfirlýsing frá sjúkrahúsi þar sem tímalengd meðgöngu kemur fram ásamt móðerni og faðerni barns.
Þjónustuaðili
Vinnumálastofnun