Breyting á skipun stjórnar trú- eða lífsskoðunarfélags
Stjórn skal ávallt skipuð í samræmi við ákvæði gildandi samþykkta. Upplýsingar um kennitölur og netföng stjórnarmanna skulu skráðar í viðeigandi reiti. Allir stjórnarmenn, varamenn og prókúruhafar skulu undirrita tilkynninguna. Heimilt er að undirrita hana rafrænt.
Samkvæmt ákvæðum 7. gr. a. laga nr. 108/1999 um skráð trúfélög og lífsskoðunarfélög með síðari breytingum, ber stjórnarmanni, framkvæmdastjóra og skipuðum fjárvörsluaðila (prókúruhafa) trú- og lífsskoðunarfélaga, að uppfylla eftirtalin skilyrði:
Vera lögráða
Hafa forræði á búi sínu og hafa ekki á síðustu þremur árum hlotið dóm í tengslum við atvinnurekstur fyrir verknað sem brýtur gegn almennum hegningarlögum, lögum um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka, lögum um hlutafélög, lögum um einkahlutafélög, lögum um bókhald, lögum um ársreikninga, lögum um gjaldþrotaskipti o.fl. eða lögum um staðgreiðslu opinberra gjalda.
Áður en til skráningar breyttrar stjórn getur komið þarf embættið að fá sent vottorð í þetta netfang um að nýr stjórnarmaður hafi foræði á búi sínu. Nálgast má vottorðið á island.is hér.
Þá þarf embættið að kalla eftir staðfestingu sakaskrár ríkisins á að ekki hafi fallið dómur sem fer í bága við ofangreind skilyrði.
Tilkynning um stjórn skal sent í netfangið truoglif@syslumenn.is ásamt afriti af viðeigandi fundargerð.
Sýslumaður skráir nýja stjórn í málakerfum embættisins ásamt því að tilkynna fyrirtækjaskrá Skattsins um hverjir sitja í stjórn.
Sé skráningu nýrrar stjórnar hafnað eða athugasemdir gerðar af hálfu sýslumanns við framkomna tilkynningu er stjórn veitt færi á að bæta úr því sem ábótavant þykir.
Þjónustuaðili
Sýslumenn