Fara beint í efnið

Útlendingastofnun: Kærur, synjanir, frávísanir og brottvísanir

Hvernig kæri ég synjun á umsókn um dvalarleyfi?

Hafi umsókn þinni um dvalarleyfi verið synjað færðu 15 daga frest til þess að kæra ákvörðunina til kærunefndar útlendingamála. Kærufresturinn byrjar að líða þegar þú móttekur synjun Útlendingastofnunar.

Á vef kærunefndarinnar má finna upplýsingar og leiðbeiningar á síðunni Hvernig get ég kært.

Kærunefnd útlendingamála gerir ekki kröfur um ákveðið form kæru. Nauðsynlegt er þó að nafn og heimilisfang kæranda komi fram í kæru, sem og tölvupóstur og/eða sími, svo hægt sé að hafa samband við kæranda á meðan kærumálið er til meðferðar hjá nefndinni.

Kæruna má senda með tölvupósti á postur@knu.is eða í gegnum Signet transfer en ekki er þörf á að senda hana einnig bréfleiðis. Á heimasíðu nefndarinnar er einnig að finna kæruform.

Í það minnsta þarf að koma fram:

  1. Fullt nafn kæranda.

  2. Fæðingardagur.

  3. Ríkisfang (og eftir atvikum viðtökuríki).

  4. Tengsl aðila, ef kært er fyrir fjölskyldu.

  5. Hvers konar ákvörðun verið er að kæra.


Nánari upplýsingar um helstu ástæður synjunar og frestun réttaráhrifa er að finna á síðunni Synjun umsóknar um dvalarleyfi.

Finnurðu ekki það sem þig vantar?

Hvernig getum við aðstoðað?

Útlendingastofnun

Þjónustuver

Afgreiðslan er opin 9 - 14 alla virka daga Þjónustuverið er opið mán - fim: 9 - 14 & fös 9 - 12

Dalvegur 18, 201 Kópavogi (sjá kort)

Netspjall

Sendu okkur línu

Sími +354 444 0900