Fara beint í efnið

Hvernig fer ég af vanskilaskrá eftir árangurslaust fjárnám?

Skuldari hefur samband við gerðarbeiðanda sem tekur skuldara af skrá við uppgjör. Greiða þarf kröfu að fullu, þ.m.t. áfallinn innheimtukostnað, til þess að skráningin sé afskráð af Creditinfo.

Skráning á vanskilaskrá hefur áhrif á lánshæfismat í 1 ár hjá einstaklingum frá árangurslausu fjárnámi, þó svo að búið sé að taka af skrá en í 4 ár hjá fyrirtækjum/lögaðilum.

Hér má finna nánari upplýsingar um fjárnám.

Hér má finna nánari upplýsingar um vanskilaskrá. 



Finnurðu ekki það sem þig vantar?

Hvernig getum við aðstoðað?