Fara beint í efnið

Hvert er ferlið ef lögbann er samþykkt?

Samþykki sýslumaður beiðni um lögbann þarf sá sem krafðist lögbanns að höfða staðfestingarmál í héraðsdómi innan viku frá staðfestingu sýslumanns.  Héraðsdómur getur fallist á lögbannið eða fellt það niður.

Að kröfu gerðarbeiðanda þarf sýslumaður að gera ráðstafanir til að halda uppi lögbanni. Lögreglu ber að veita aðstoð í þeim efnum eftir ákvörðun sýslumanns.

Sé staðfestingarmál ekki höfðað innan viku fellur lögbannið sjálfkrafa niður.

Hér má finna nánari upplýsingar um lögbann.



Finnurðu ekki það sem þig vantar?

Hvernig getum við aðstoðað?