Sveitarstjórnarkosningar 2026

Utankjörfundaratkvæðagreiðsla hefst 17. apríl
14. apríl 2026
Hægt verður að kjósa utankjörfundar í sveitarstjórnarkosningum frá og með 17. apríl.

Kosning fer fram hjá sýslumönnum um allt land og hjá sumum sveitarfélögum, upplýsingar um opnunartíma má finna hér.
Erlendis fer kosning fram hjá sendiskristofum Íslands og kjörræðismönnum. Nálgast má upplýsingar um opnunartíma sendiskrifstofa á vefsíðum þeirra og samfélagsmiðlum.
Athugið að kjósendur sem ekki kjósa hjá sýslumanni í sínu umdæmi bera sjálfir ábyrgð á að koma utankjörfundaratkvæðum til þess sveitarfélags þar sem þeir eru á kjörskrá, t.d. með pósti. Hér má finna nánari upplýsingar um framkvæmd utankjörfundaratkvæðagreiðslu.