Skotvopnaleyfi
Lánstilkynning skotvopns
Ætli einstaklingur sér að nota og varsla skotvopn í eigu annars til lengri tíma en 4 vikna, þarf að senda inn Umsókn um lánsvopn. Þá þarf verðandi lánþegi að fá uppgefið landsnúmer skotvopnsins, en eigandi þess sér það í eignalistanum sínum.
Þegar umsóknin hefur verið samþykkt af lögreglu fær eigandi skotvopnsins tilkynningu og þarf hann að staðfesta að hann sé að lána viðkomandi vopnið.
Ferlið er í raun það sama og við sölu skotvopns, nema hvað engin eigendaskipti eiga sér stað. Þegar ferlinu hefur verið lokið verður vopnið sjáanlegt á eignalistum beggja aðila, lánþega og eiganda.
Hjá lánþega verður það merkt sem lánsvopn, en hjá eiganda færist það í stöðuna "Í láni".
Lánsheimild heldur gildi sínu þar til annar hvor aðilinn tilkynnir lögreglu um niðurfellingu lánsheimildar.
Þjónustuaðili
LögreglanTengd stofnun
Umhverfisstofnun