Fara beint í efnið
Vinnumálastofnun Forsíða
Vinnumálastofnun Forsíða

Vinnumálastofnun

Vinnumálastofnun hlýtur styrk vegna tilraunaverkefnisins Vegvísir

2. mars 2022

Í gær undirrituðu Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumálaráðherra, og Unnur Sverrisdóttir samkomulag um styrk ráðuneytisins að upphæð 25.000.000 kr til tilraunaverkefnisins Vegvísir.

Vegvísir

Verkefninu er ætlað að stuðla að aukinni virkni og velferð ungs fólks í viðkvæmri stöðu sem er útsett fyrir ótímabæra fjarveru af vinnumarkaði eða úr skóla. Tilraunin felst í að auka samlegð og samstarf þjónustukerfa um þjónustu við hópinn.

Að verkefninu koma Vinnumálstofnun, Velferðarsvið Reykjavíkurborgar, Virk starfsendurhæfingarsjóður, Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins og TR. Styrkurinn verður notaður til að ráða ráðgjafa “Vegvísi” sem mun starfa þvert á þjónustukerfin og hefur Íris Halla Guðmundsdóttir náms- og starfsráðgjafi verið ráðin til verksins, en hún hefur starfað sem ráðgjafi hjá Vinnumálastofnun við góðan orðstír.