Fara beint í efnið
Vinnumálastofnun Forsíða
Vinnumálastofnun Forsíða

Vinnumálastofnun

Vegna úrskurða er varða skerðingu á hlutabótum

22. apríl 2022

Úrskurðarnefnd velferðarmála hefur í málum nr. 521, 530, 534 og 616/2021 komist að þeirri niðurstöðu að orlof og orlofsuppbót skuli ekki koma til skerðingar á hlutabótum í þeim mánuði sem greiðsla orlofs var innt af hendi.

Vinnumálastofnun - logo

Úrskurðarnefnd velferðarmála hefur í málum nr. 521, 530, 534 og 616/2021 komist að þeirri niðurstöðu að orlof og orlofsuppbót skuli ekki koma til skerðingar á hlutabótum í þeim mánuði sem greiðsla orlofs var innt af hendi. Niðurstaðan hefur m.a. áhrif á greiðslur til þeirra einstaklinga sem fengu greitt uppsafnað orlof, orlofsuppbót eða desemberuppbót á meðan þeir voru á hlutabótum árin 2020 og 2021. Unnt er að kynna sér úrskurði nefndarinnar á vef Stjórnarráðs Íslands https://www.stjornarradid.is/gogn/urskurdir-og-alit-/

Í ljósi úrskurða nefndarinnar hefur Vinnumálastofnun hafið vinnu við að fara yfir þau mál þar sem launamaður getur hugsanlega átt rétt á endurútreikningi vegna þessara úrskurða. Stofnunin mun hafa samband við þá sem kunna að eiga rétt á leiðréttingu með því að birta tilkynningu þess efnis á Mínum síðum og senda tölvupóst og sms um að þeim hafi borist erindi vegna þessa.