Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Vinnumálastofnun Forsíða
Vinnumálastofnun Forsíða

Vinnumálastofnun

Þjónusta fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd

27. mars 2026

Vinnumálastofnun heldur utan um þjónustu fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd. Í þjónustu- og velferðarteymi stofnunarinnar starfar fólk með víðtæka menntun og reynslu sem vinnur ötullega að því að veita umsækjendum góða og mannúðlega þjónustu þegar kemur að virkni-, velferðar- og heilbrigðisþjónustu.

Þegar umsækjendur um alþjóðlega vernd búa í húsnæði á vegum stofnunarinnar samþykkja þeir að lúta ákveðnum húsreglum og er þeim kynntar þær reglur persónulega og á reglulegum húsfundum sem haldnir eru með þjónustuteymi. Í úrræðunum eru samþykktar húsreglur hengdar á veggi og má finna þær á vefsíðu stofnunarinnar.

Ef þessar reglur eru ekki virtar er reynt að leysa það í sátt við íbúa, sem gengur í flestum tilfellum vel. Lögð er áhersla á að íbúar sýni hvert öðru vinsemd og virðingu þar sem ólíkir einstaklingar koma saman og börn búa í húsum sem oftar en ekki fylgir leikur, hlátur og gleði. Starfsfólk stofnunarinnar leggur áherslu á að dvöl barna í úrræðunum sé eins jákvæð og völ er á og ástæða er að taka það fram að stofnunin beitir aldrei viðurlögum eða refsingum vegna hegðunar barna.

Í flestum fjölskylduúrræðum stofnunarinnar er afdrep fyrir fólk til að setjast niður á almennu svæði, þar eru leikhorn fyrir börn og setustofa fyrir fólk til að sitja saman og spjalla.

Börn á grunnskólaaldri sækja grunnskóla og er starfsfólk stofnunarinnar í góðu samstarfi við sveitarfélögin varðandi skólavist barna. Í vetur hafa börn á leikskólaaldri haft aðgang að Memmm play - opna leikskólanum þar sem foreldrar þeirra geta mætt með börnin sín og sótt virkni og örvun fyrir þau.

Nánari upplýsingar um Memmm play má finna á vefsíðu þeirra: memmm.is

Nánari upplýsingar um þjónustu fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd má finna á vefsíðu stofnunarinnar: Grunnþjónusta fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd | Ísland.is.