Skýrsla um vinnumarkaðinn á fyrri helmingi árs 2026
31. ágúst 2026
Vinnumálastofnun hefur gefið út skýrslu um vinnumarkaðinn á fyrri helmingi ársins 2026.

Í skýrslunni er farið yfir helstu þætti innlends vinnumarkaðar og rýnt í þróun milli landssvæða og hópa á vinnumarkaði eftir aldri, kyni og uppruna. Einnig verður spáð fyrir um þróun atvinnuleysis næstu 12 mánuði.
Skammtímaspá Vinnumálastofnunar gerir ráð fyrir að atvinnuleysi fari hækkandi næstu 12 mánuði samanborið við undanfarið ár og nái hámarki á fyrstu mánuðum ársins 2027 með atvinnuleysi á bilinu 5,4%5,5%.