Skýrsla Fjölmenningardeildar Vinnumálstofnunar fyrir árið 2025
22. september 2026
Í skýrslunni er dregin saman helsta tölfræði og þróun í málefnum innflytjenda, erlendra ríkisborgara og flóttafólks á Íslandi árið 2025.
Fjallað er um mannfjöldaþróun, vinnumarkað, menntakerfið, umsóknir um alþjóðlega vernd og móttöku flóttafólks, auk annarra þátta sem varða stöðu og þátttöku fólks af erlendum uppruna í íslensku samfélagi. Gögn skýrslunnar sýna að innflytjendum heldur áfram að fjölga, sérstaklega meðal fólks á vinnualdri, og að framlag þeirra til mannfjöldavaxtar og atvinnulífs landsins er umtalsvert. Jafnframt varpa niðurstöðurnar ljósi á þær áskoranir sem enn eru til staðar, meðal annars á sviði tungumála, menntunar, atvinnuöryggis og félagslegrar þátttöku.