Skráð atvinnuleysi í desember var 4,4%
9. janúar 2026
Skráð atvinnuleysi í desember var 4,4% og jókst um 0,1% frá síðasta mánuði. Í desember 2024 var atvinnuleysið hins vegar 3,8%.

Að meðaltali voru 9.043 atvinnulausir í desember, 5.428 karlar og 3.616 konur. Meðalfjöldi atvinnulausra fjölgaði um 294 manns milli mánaða. Atvinnuleysi var mest á Suðurnesjum í desember eða 8,9% og hækkaði úr 8,6% frá fyrri mánuði.