Hópuppsagnir í september 2026
2. október 2026
Alls bárust sex tilkynningar um hópuppsagnir í september 2026, þar sem 181 starfsmanni var sagt upp störfum.
Flestar uppsagnirnar eru á sviði hugbúnaðar og upplýsingatækni, alls 80 starfsmenn. Auk þess var 68 starfsmönnum í byggingariðnaði sagt upp störfum, 20 starfsmönnum í fiskvinnslu og 13 starfsmönnum í íþróttastarfsemi.
Uppsagnirnar koma flestar til framkvæmda á tímabilinu október 2026 til mars 2027.