Hópuppsagnir í október 2026
2. nóvember 2026
Fimm tilkynningar um hópuppsagnir bárust Vinnumálastofnun í október 2026. Alls var 281 starfsmanni sagt upp störfum.
Þar af var 227 starfsmönnum sagt upp á sviði opinberrar stjórnsýslu, 177 hjá ríkisstofnunum og 50 hjá sveitarfélagi. Þá var 41 starfsmanni sagt upp á sviði félagsþjónustu og 13 starfsmönnum í matvælaframleiðslu.
Flestar uppsagnirnar koma til framkvæmda á tímabilinu nóvember 2026 til febrúar 2027.