Hópuppsagnir í mars 2026
1. apríl 2026
Alls bárust þrjár tilkynningar um hópuppsagnir í mars 2026, þar sem 90 starfsmönnum var sagt upp störfum.
Flestir þeirra sem sagt var upp störfum störfuðu við mannvirkjagerð, alls 60 starfsmenn. Að auki var 30 starfsmönnum sagt upp á sviði verslunar. Uppsagnirnar koma flestar til framkvæmda á tímabilinu maí 2026 til júlí 2026.