Hópuppsagnir í maí 2026
1. júní 2026
Alls bárust fjórar tilkynningar um hópuppsagnir í maí 2026, þar sem 370 starfsmönnum var sagt upp störfum.
Flestir þeirra sem sagt var upp störfum störfuðu í gistiþjónustu, alls 270 starfsmenn. Auki þess var 26 starfsmönnum tengt ferðaþjónustu sagt upp störfum, 37 starfsmönnum í sjávarútvegi og 37 starfsmönnum í fjármálastarfsemi. Uppsagnirnar koma flestar til framkvæmda á tímabilinu júlí 2026 til desember 2026.