Hópuppsagnir í ágúst 2026
1. september 2026
Alls bárust tvær tilkynningar um hópuppsagnir í ágúst 2026, þar sem 100 starfsmönnum var sagt upp störfum.
Flestir þeirra sem sagt var upp störfum störfuðu á velferðarsviði og skóla- og frístundarsviði, alls 86 starfsmenn.
Að auki var 14 starfsmönnum sagt upp á sviði heilsu- og líkamsræktar.
Uppsagnirnar koma flestar til framkvæmda á tímabilinu september til nóvember 2026.