Fara beint í efnið
Vinnumálastofnun Forsíða
Vinnumálastofnun Forsíða

Vinnumálastofnun

Breytingar á lögum um atvinnuréttindi útlendinga hafa tekið gildi

8. júlí 2026

Þann 8. júlí 2026 tóku gildi breytingar á lögum nr. 97/2002 um atvinnuréttindi útlendinga Breytingarnar fela meðal annars í sér að ábyrgð á afgreiðslu og útgáfu tímabundinna atvinnuleyfa á grundvelli laga um atvinnuréttindi útlendinga flytjast frá Vinnumálastofnun til Útlendingastofnunar.

Óafgreiddar umsóknir um tímabundin atvinnuleyfi sem borist hafa fyrir gildistöku breytinganna skulu afgreiddar af Útlendingastofnun.

Sjá nánar hér: Útlendingar og atvinnuréttindi útlendinga | Ferill þingmáls | Alþingi

Vinnumálastofnun mun á næstu dögum áframsenda öll óafgreidd/ókláruð mál og erindi er tengjast umsóknum um atvinnuleyfi til Útlendingastofnunar. Við þennan tilflutning má reikna með töf á afgreiðslu umsókna. Sé óskað nánari upplýsinga um atvinnuleyfi skal hafa samband við Útlendingastofnun á utl@utl.is.