Breytingar á lögum um atvinnuleysistryggingar - Nýjar ávinnslureglur
1. september 2026
Þann 1. september taka gildi breytingar á lögum um atvinnuleysistryggingar er varðar ávinnuslutímabil. Lágmarksávinnslutímabil til að eiga rétt til atvinnuleysibóta hækkar úr 3 mánuðum í 7 mánuði.
Með breytingunum þarf einstaklingur að hafa unnið í a.m.k. 25% starfshlutfalli í sjö mánuði til að eiga rétt á atvinnuleysisbótum.
Ef um sjálfstætt starfandi einstakling er að ræða þarf hann að hafa greitt sér að lágmarki, 25% í reiknað endurgjald í sjö mánuði til að eiga rétt á atvinnuleysisbótum.