Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Vinnumálastofnun Forsíða
Vinnumálastofnun Forsíða

Vinnumálastofnun

Breytingar á fjárhæðum greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði

6. janúar 2026

Þann 19. desember 2025 tók gildi reglugerð um breytingar á fjárhæðum greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði og fjárhæðum fæðingarstyrks.

Samkvæmt reglugerð nr. 1492/2025 eru hámarksfjárhæð og lágmarksgreiðslur úr Fæðingarorlofssjóði frá og með 1. janúar 2026:

  • Hámarksfjárhæð skv. 1. mgr. 24. gr. laganna skal nema

    900.000 kr.

    á mánuði.

  • Lágmarksgreiðsla skv. 1. málsl. 3. mgr. 24. gr. laganna hækkar í

    207.708 kr.

    á mánuði. (Foreldrar í 25-49% starfi)

  • Lágmarksgreiðsla skv. 2. málsl. 3. mgr. 24. gr. laganna hækkar í

    275.688 kr

    . á mánuði. (Foreldrar í 50-100% starfi)

Samkvæmt reglugerð nr. 1492/2025 eru greiðslur fæðingarstyrks frá og með 1. janúar 2026:

  • Fæðingarstyrkur skv. 1. málsl. 1. mgr. 38. gr. laganna hækkar í

    138.086 kr.

    á mánuði. (Foreldrar utan vinnumarkaðar eða í minna en 25% starfshlutfalli)

  • Fæðingarstyrkur skv. 2. málsl. 1. mgr. 38. gr. laganna hækkar í

    275.688 kr.

    á mánuði. (Foreldrar í fullu námi)

Tengill á reglugerð nr. 1492/2025; https://island.is/stjornartidindi/nr/c2a2c496-d30a-4244-a841-a98108e06d26

Ættleiðingarstyrkur

Frá 1. janúar 2026 verður ættleiðingarstyrkur 865.910 kr. skv. reglugerð nr. 1483/2025, https://island.is/stjornartidindi/nr/e69419e1-328d-4bff-a47f-7d76445ce8a9