Aukið atvinnuleysi á Suðurnesjum
10. nóvember 2025
Samkvæmt opinberum tölum Vinnumálastofnunar er skráð atvinnuleysi á Suðurnesjum nú 7,1%. Þessi þróun gefur tilefni til markvissra aðgerða af hálfu Vinnumálastofnunar, í samræmi við lög um atvinnuleysistryggingar og um vinnumarkaðsaðgerðir.

Upplýsingar fyrir atvinnuleitendur:
Atvinnuleitendur, sem skráðir eru hjá Vinnumálastofnun, eru hvattir til að hafa samband við þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar á Suðurnesjum. Þar veita ráðgjafar einstaklingsmiðaða þjónustu, sem felur í sér ráðgjöf, stuðning við atvinnuleit, hæfnimat og kynning á úrræðum sem standa til boða.
Upplýsingar fyrir atvinnurekendur:
Atvinnurekendum á Suðurnesjum er einnig boðin þjónusta og ráðgjöf Vinnumálastofnunar. Stofnunin veitir upplýsingar um vinnumarkaðsúrræði, ráðningarstyrki og aðstoðar fyrirtæki við að finna hæft starfsfólk. Samstarf atvinnurekenda og Vinnumálastofnunar er lykilatriði til að efla, virkja og styðja við atvinnuleitendur á svæðinu.
Vinnumálastofnun mun áfram fylgjast náið með þróun mála og grípa til ráðstafana sem miða að því að styðja við atvinnulíf og atvinnuleitendur á Suðurnesjum.