Atvinnuleyfi færast yfir til Útlendingastofnunar
22. júní 2026
Atvinnuleyfi færast yfir til Útlendingastofnunar
Þann 18. júní 2026 samþykkti Alþingi breytingar á lögum nr. 97/2002 um atvinnuréttindi útlendinga.
Breytingarnar fela meðal annars í sér að ábyrgð á afgreiðslu og útgáfu tímabundinna atvinnuleyfa á grundvelli laga um atvinnuréttindi útlendinga mun flytjast frá Vinnumálastofnun til Útlendingastofnunar. Óafgreiddar umsóknir um tímabundin atvinnuleyfi sem borist hafa fyrir gildistöku breytinganna skulu afgreiddar af Útlendingastofnun eftir birtingu þeirra í Stjórnartíðindum.
Sjá nánar hér: Útlendingar og atvinnuréttindi útlendinga | Ferill þingmáls | Alþingi
Á næstu dögum mun Vinnumálastofnun áframsenda öll óafgreidd mál og erindi er tengjast umsóknum um atvinnuleyfi til Útlendingastofnunar. Við þennan tilflutning og meðan beðið er birtingar breytinga í Stjórnartíðindum má reikna með töf á afgreiðslu umsókna. Sé óskað nánari upplýsinga um stöðu mála er hægt að senda erindi á Vinnumálastofnun á atvinnuleyfi@vmst.is en eftir birtingu breytinga í Stjórnartíðindum þá skulu öll erindi send á Útlendingastofnun á utl@utl.is.