Afhending ársskýrslu um nýtingu réttinda
6. júlí 2022
Vinnumálastofnun hefur nú í fyrsta skipti unnið skýrslu um nýtingu réttinda samkvæmt lögum um fæðingar- og foreldraorlof nr. 144/2020.
Stofnunin naut við það aðstoðar Ph.D. Ásdísar Aðalbjargar Arnalds, verkefnisstjóra við Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands í samræmi við samstarfssamning félags- og vinnumarkaðsráðuneytisins, Vinnumálastofnunar og Háskóla Íslands.
Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, veitti ársskýrslunni móttöku á starfsstöð Fæðingarorlofssjóðs á Hvammstanga fimmtudaginn 30. júní sl.
Hann kynnti sér jafnframt starfsemina sem þar fer fram og ræddi við starfsfólk.
Á myndinni eru, frá vinstri: Þórdís Helga Benediktsdóttir, forstöðumaður Fæðingarorlofssjóðs, Guðmundur Ingi Guðbrandsson félags- og vinnumarkaðsráðherra, Leó Örn Þorleifsson, sviðsstjóri réttindasviðs, og Unnur Sverrisdóttir, forstjóri Vinnumálastofnunar.