Fara beint í efnið
Stafrænt Ísland Forsíða

Stafrænt Ísland

Fréttabréf september 2023

13. september 2023

Fréttabréf Stafræns Íslands september 2023.

Tengjum-rikid-vefbordar Vefur-1200x630

Miðasala hafin á Tengjum ríkið

Tengjum ríkið er árleg ráðstefna Stafræns Íslands þar sem stafræn framtíð hins opinbera er umfjöllunarefnið.

Yfirskrift ráðstefnunnar í ár er Stafrænt samfélag og skiptist í undirflokkana Stafræn forysta, Stafrænt Ísland og Stafrænt öryggi. Ráðstefnan í ár er haldin í samstarfi við fund Norrænu ráðherranefndarinnar þar sem Ísland fer með formennsku. 

Ráðherrar Norðurlandanna og Eystrarsaltsríkjanna koma saman og ræða stafrænt samstarf og forystu svæðisins. Sérstakur gestur verður Clare Martorana en hún stýrir upplýsingatæknimálum í Hvíta húsinu fyrir hönd Bandaríkjaforseta. Eftir kaffihlé flytja fulltrúar hverrar þjóðar Norðurlandaráðs erindi um stafræn forgangsmál næstu ára ásamt því að deila sögum á árangursríkum verkefnum.

Kjarnaþjónustur Stafræns Íslands og þróun þeirra verður megin þema í Kaldalóni að loknu kaffihléi. Þar verður farið yfir hvað er í boði fyrir stofnanir, praktísk atriði um innleiðingu og virkni.

Nánari upplýsingar um dagskrá er að finna á Ísland.is.

Ráðstefnan fer fram þann 22.september frá 12.30-17 bæði í Hörpu og í streymi.

Miðasala er hafin en miðaverð er 4.900 kr. og á jafnt við um miða í sal sem og í streymi. Athugið að takmarkaður fjöldi miða er í boði fyrir þá sem vilja sitja erindi sem fara fram í Kaldalóni. 

Tengjum ríkið miðasala


100 þúsund umsóknir gegnum Ísland.is

100 þúsund umsóknir gegnum Ísland.is

Umsóknarkerfi Ísland.is náði þeim áfanga nú í ágúst að fara yfir 100 þúsund umsóknir á árinu en vöxtinn má sjá á myndinni hér fyrir ofan.
Fjöldi umsóknanna er vísbending um ánægju notenda með að geta sótt um stafrænt og þar með minnkað pappírsnotkun og sparað sér sporin til stofnana. Dæmi um umsóknir eru stafrænt ökunám, umsókn um ES kort, umsókn um fæðingarorlof og svo mætti lengi telja. Í hverjum mánuði bætast við stafrænar umsóknir á Ísland.is og má því búast við áframhaldandi aukningu á notkun umsóknarkerfis Ísland.is.


Framkvæmdastjóri Stafræns Íslands

Fjármála- og efnahagsráðuneytið leitar að öflugum og reynslumiklum aðila til að leiða stafræna umbreytingu ríkisins. Viðkomandi mun gegna lykilhlutverki í þróun og frekari mótun stafrænnar þjónustu hins opinbera.

Umsóknarfrestur rann út 18. september.


Velkominn Óli 

Ólafur Ingþórsson hefur gengið til liðs við Stafrænt Ísland en hann kemur til okkar frá Origo. Ólafur mun leggja áherslu á skýjavegferð Ísland.is sem skýjarekstrar- og öryggisstjóri. Við bjóðum Óla hjartanlega velkominn í hópinn. 


Velkomið Starfatorg

Að undanförnu hefur verið unnið að flutningi starfatorgsins á Ísland.is með það að markmiði að stíga enn frekari skref í að bæta upplýsingagjöf og stafræna þjónustu hins opinbera gagnvart almenningi.

Starfatorg á Ísland.is


Velkomin GEV

Fjöldi stofnana sér hag sinn í að sameina krafta opinberra aðila á Ísland.is. Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála er nýjasti meðlimur Ísland.is samfélagsins.

Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála


Kílómetrastaða bíla

Upplýsingar um kílómetrastöða ökutækis er ný þjónusta sem er að finna á Mínum síðum Ísland.is og í Ísland.is appinu. Upplýsingarnar berast með vefþjónustu beint úr grunnkerfum Samgöngustofu.


Skoða kílómetrastöðu ökutækis


Aukið meðlag

Vorum að gefa út beiðni um aukið meðlag. Þetta er hluti af stafvæðingu á öllum ferlum sem snúa að Fjölskyldumálum hjá Sýslumönnum.

Lesa frétt um aukið meðlag


Meðal verkefna Stafræns Íslands:

  • Ákvörðun um skipti dánarbús

  • Birting á réttindum til P-korts í Ísland.is appi og Mínum síðum

  • Eigendaskipti vinnuvéla og tækja

  • Endurnýjun ökuréttinda

  • Ísland.is app - fjármál

  • Mínar síður: Fjármál, hreyfingar á tímabilinu

  • Mínar síður: Heilsugæsla og tannlæknar ítrun

  • Mínar síður: Hugverkaréttindin mín

  • Mínar síður: Námsyfirlit úr INNU

  • Mínar síður: Starfsleyfi heilbrigðisstarfsfólks

  • Rafræn erfðafjárskýrsla

  • Mínar síður: Upplýsingar um lyfjakaup og lyfjaskírteini

  • Rafræn þinglýsing á kaupsamningum fasteigna

  • Samráðsgátt - uppfært notendaviðmót

  • Staðfesting stafrænna ökuskírteina hjá Vínbúðunum

  • Stafrænt veiðikort

  • Tilkynning um vinnuslys

  • Umsón um dvalarleyfi

  • Umsókn um endurnýjun dvalarleyfa ítrun

  • Umsókn um ellilífeyri

  • Umsókn um fæðingarorlof: Varanlegt fóstur og dvalarstyrkur

  • Umsókn um háskóla

  • Umsókn um ríkisborgararétt ítrun

  • Umsókn um sannvottun

  • Umsókn um vegabréf

  • Umsókn um ökuritakort

  • Upplýsingavefur um háskólanám á Íslandi

  • Vefur Náttúruhamfaratrygginga á Ísland.is

  • Vefur Réttindagæslu fyrir fatlað fólk á Ísland.is

  • Vefur Samgöngustofu á Ísland.is

  • Vefur Tryggingastofnunar á Ísland.is

  • Vefur Vinnueftirlitsins á Ísland.is