Fara beint í efnið
Stafrænt Ísland Forsíða

Stafrænt Ísland

Fréttabréf september 2022

5. september 2022

Fréttabréf Stafræns Íslands september 2022.

ISL-TengjumRikid-radstefna-2022 Social-media FB 1200x630px Fyrirlesarar 0822

Tengjum ríkið 2022

Tengjum ríkið er ráðstefna um stafræna framtíð hins opinbera og fer fram í Hörpu þann 22. september 2022 frá 13-17.

Aðal fyrirlesari að þessu sinni verður Kevin Cunnington fyrrum forstjóri GDS (Government Digital Services) í Bretlandi en hann er einn þeirra sem hefur leitt stafræna þróun hins opinbera þar í landi. Kevin Cunnington mun leiða okkur í gegnum nýja rannsókn sem fjallar um hvað það er sem stafrænir leiðtogar þurfa til að ná árangri og helstu hindranir stofnana á stafrænni vegferð. Þá fáum við erindi frá Dr. Silvija Seres en hún sérhæfir sig í stafrænni umbreytingu.

Ítarlegri dagskrá verður kynnt á næstu dögum. 

Skráning er í fullum gangi - en þegar er kominn biðlisti í sal þó nóg pláss sé í streymi. 

Skráning á Tengjum ríkið!


Utlendingastofnun_velkomin


Vertu velkomin Útlendingastofnun!

Útlendingastofnun hefur nú opnað nýjan vef sinn á Ísland.is. Síðustu mánuði hefur starfsfólk Útlendingastofnunar unnið hörðum höndum að því að uppfæra allt efni og stilla upp á nýjum vef. 
Við bjóðum Útlendingastofnun hjartanlega velkomna á Ísland.is

Nýr vefur Útlendingastofnunar


Umsókn um sölu áfengis á Ísland.is

Í sumar var opnað fyrir stafræna umsókn um leyfi til sölu áfengis á framleiðslustað. 15 brugghús hafa sótt um og öll stafrænt en stafæna umsóknin opnaði á sama tíma og lögin tóku gildi. Það eru sýslumenn sem þjónusta umsóknina. 

Skoða umsókn


Tilkynning um andlát nú stafræn

Sýslumenn hafa unnið að endurbótum á frágangi dánarbúa með þægindi aðstandenda að leiðarljósi. Hefst ferlið nú með rafrænni tilkynningu um andlát sem landlæknir sendir sýslumönnum. Aðstandandi fær bæði andlátstilkynningu í sitt stafræna pósthólf á Ísland.is og getur fyllt út ýtar upplýsinga í stafrænni tilkynningu. Til þessa hafa aðstandendur þurft að safna saman öllum gögnum og koma til sýslumanna.
Ferlið á að auðvelda aðstandendum að koma upplýsingum til skila til sýslumanna og er sem fyrr segir hluti af heildar endurbótum á frágangi dánarbúa.


Greiðslukerfi Ísland.is vel tekið

Greiðslukerfi bættist við umsóknarkerfi Ísland.is í lok síðasta árs þar sem notendur geta greitt fyrir opinbera þjónustu sem sótt er á Ísland.is. Í dag eru 31 þjónustuferli á Ísland.is sem krefjast greiðslna. Á tímabilinu janúar til júlí fóru 13.794 greiðslur í gegnum greiðslukerfi eða 53% greiðslna.


Meðal verkefna Stafræns Íslands þessa dagana eru:

  • Vegabréfið þitt - birting upplýsinga á Mínum síðum Ísland.is og í appi

  • Stafræn umsókn um vegabréf

  • Rafræn þinglýsing á afsali fasteigna

  • Rafræn þinglýsing á kaupsamningum fasteigna

  • Umboðskerfi fyrir stofnanir

  • Rafræn skil á ársreikningum til Ríksendurskoðunar

  • Tveggja ára vegvísir stafrænnar þjónustu sveitafélaga á Ísland.is

  • Fjárhagsaðstoð Sveitafélaga á Ísland.

  • Stafræn skotvopnaskírteini

  • Vefur Fiskistofu á Ísland.is

  • Vefur Ríkislögmanna á Ísland.is

  • Vefur Landskjörstjórnar á Ísland.is

  • Vefur Ríkiskaupa á Ísland.is